Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Blaðsíða 9
N. Kv. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 45 Vísu þessa kvað hann ævinlega, þegar hann hugsaði sem mest. Og aldrei heyrði ég hann kveða aðra vísu allan þann tíma, sem ég var hjá honum. Eftir þrjár vikur hafði hann lokið við breytinguna á skránni. Og nú var gengið vel frá henni, og hún síðan send Páli. En aðferðin við að opna hana hafði nú breytzt. Snúningsfjöldinn var sá sami, en öfug-snún- ingarnir og smellirnir voru nú öðruvísi. Magnús skrifaði Páli nákvæmlega um breyt- inguna, og hvernig nú ætti að opna skrána, en það stoðaði ekki. Páll gat aldrei opnað hana, og kom því með hana heim aftur, þar sem hann hafði ekki getað sýnt vænt- anlegum kaupendum hana. Til þess að geta haldið áfram með sögu skrárinnar, verð ég að lilaupa yfir fimmtán ár. Þá átti ég heima í Reykjavík. Árið 1907 var haldin þar iðnsýning. Nokkrum dög- um áður en sýningin var opnuð, kemur Pétur Gauti til þings. Magnús hafði þá beðið Pétur fyrir skrána, og átti hún að komast inn á sýninguna. En ekki var til neins að setja hana þangað, nema einhver gæti sýnt, hvernig hún væri opnuð. Hafði Magnús kennt Pétri aðferðina, og átti hann svo að fara með skrána til mín og sýna mér aðferðina. Átti ég síðan að sjá um hana á sýningunni og sýna þeim mönnum aðferð- ina, er gaman hefðu að kynnast henni. Nú kemur Pétur til mín með skrána. En sá var þá hængurinn á, að á leiðinni hafði hann gleymt aðferðinni við að opna hana. Meðan ég var hjá Magnúsi, hafði ég lært að opna skrána, en nú var svo langt um liðið, að ég hafði líka gleymt aðferð- inni. Sátum við Pétur nokkrar klukku- stundir og reyndum við hana, en hvorug- ur okkar gat hitt á réttu aðferðina. Og sú varð þá niðurstaðan að lokum, að ég skyldi geyma hana, þar til Pétur færi heim af þingi, ef Magnús kæmi þá ekki sjálfur og ráðstafaði lienni á annan hátt. Nú voru ekki nema tveir dagar, þar til opna átti sýninguna. Gat ég ekki á heilum mér tekið fyrir því, hvað mér þótti leiðin- legt, að skráin skyldi ekki komast á sýning- una. Mér þótti svo vænt um Magnús, að ég vildi allt fyrir liann gera, og þótti mér skömm að geta ekki komið skránni á fram- færi fyrir það eitt, að ekki væri hægt að sýna gildi hennar. Ég réðst því í það kvöld- ið áður en opna átti sýninguna — og þó með hálfum huga — að skrúfa sundur alla skrána. Var þetta ekkert áhlaupaverk, því að í skránni voru um þrjátíu smájárn. Lykl- arnir voru tveir. Annar þeirra til að gera hana einfalda eins og hverja aðra skrá, en hinn til að opna hana og loka með öllum þeim meinlokum, sem þar voru. Gat ég átt það á hættu að koma henni aldrei rétt sam- an aftur. Samt gekk þetta allt vel. Með því að taka liana alveg sundur, gat ég þraut- hugsað samsetningu hennar og séð, til hvers hvert einstakt smájárn var ætlað, og hvernig þau öll störfuðu innbyrðis. Var ég búinn að koma öilu rétt saman klukkan tvö um nóttina og orðinn útfarinn í að opna skrána og loka henni. Og ég var kominn með hana á sýninguna, áður en hún var opnuð um morguninn. Skráin vakti auðvitað mikla aðdáun á sýningunni, en svo var því þar með lokið. Ég kenndi Matthíasi Þórðarsyni þjóðminja- verði að opna skrána og loka. Seinna kom Magnús sjálfur suður, og að lokinni sýn- ingu setti hann skrána á þjóðminjasafnið, og þar mun hún vera enn. Er nú að vísu lokið sögu skrárinnar. En ég tel bezt viðeigandi að ljúka þessu inn- skoti með nokkuð ýtarlegri ummælum um Magnús sem hugvitsmann og uppfindinga- mann. Enda verður því eigi annars staðar betur við komið í frásögn minni. Magnús Þórarinsson mun hafa verið ein- hver mesti hugvitsmaður íslenzkur um langan aldur. En eina vélin, sem hann gat fullgert og selt, var dúnhreinsunarvél hans. Mun hann hafa notið einhvers styrks og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.