Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Qupperneq 34

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1951, Qupperneq 34
70 MANNLÍFIÐ ATHUGAÐ í BÍLSPEGLINUM N. Kv„ vatnið úr byssunni og þarf nú að fylla hana aftur úr flöskunni, sem hann hafði skilið eftir á bílgólfinu. „Hæ, bílstjóri!" öskraði hann. Eg stöðva bílinn og fer út úr honum, og þilturinn lítur niður til mín og hlær kjána- lega. „Ég er fastur. Hjálpaðu mér niður. Viltu ekki gera það?“ Ég blátt áfram hékk í löppunum á hon- um og togaði og rykkti og kippti í af öll- um kröftum, en hann hnikaðist ekki. Hann var hvorki meira né minna en rígskorðaður í hleraopinu, og það var að minnsta kosti þriggja þumlunga ístrukragi utan um hann, sem bungaðist út yfir hleraops-brúnina á alla vegu. Við vorum nú staddir á miðju Tíma- torgi, og hafði- þegar safnazt saman óhemju mannfjöldi á gangstéttinni og stöðvað alla umferð. „Æ, hjálpaðu mér niður aftur, hjálpaðu mér!“ hélt hann áfram að lirópa til mín. Lögregluþjónn ryður sér braut að bíln- um mínum. Hann ætlar varla að trúa eigin augum. „Svo er að sjá, að ég verði að senda eftir slysavarnarliði," segir hann og flýtir sér að næsta símaklefa. En á meðan hrópar mannfjöldinn upp og leggur á björgunar- ráð í hrönnum: „Smyrjið þið hann með vaselíni! Kitlið þið peyjann duglega!" o. s. frv., og sjálfboðaliðinn vindur sig og snýr upp á sig á alla vegu eins og danstrúður. Að fimm mínútum liðnum kemur björg- unarsveitin brunandi með gjallandi lúðr- um. Tveir þrír másandi „laggar" klifra upp á bílþakið, og aðrir fara inn í bílinn og reyna að lyfta náunganum upp um opið. Þegar það tekst ekki, reyna þeir að toga hann niður. En náunginn situr fastari held- ur en skrúflok á sultukrukku. Laggarnir taka því upp brotjárn sín (,,kúbein“). ,,Æ, piltar góðir,“ segi ég, „gerið svo vel að brjóta ekki sundur bílinn fyrir mér!“ Foringinn klórar sér í kolli dálitla stund, og segir síðan: „Jæja, við verðum þá að reyna talíurnar. En dugi þær ekki, verðum við að saga utan af honum.“ Þeir festu nú talíurnar í gálga inni í stóru vinnutjaldi, sem þeir fluttu með sér. Og nú ók ég bílnum aftur á bak upp á gangstétt- ina og inn undir tjaldið. Bundu nú lagg- arnir reipi undir hendurnar á hermann- inum og settu tróð undir til hlífðar. „Þú verður að segja til, þegar þú þolir þetta ekki lengur," sagði lögregluforinginn, „og þá skulum við hætta.“ Nú tóku sex laggar að draga talíureipin hægt og gætilega. Æsihrifning fer um allan mannfjöldann, og hróp og köll gjalla, eins og hér væri um fyrstu atrennu í verðlauna- keppni að ræða. Nú strengist á reipunum, ofurlítið tognar úr hermanninum, og enn ofurlítið. Hann er sprengrauður í andliti, og svitinn streymir ofan eftir andlitinu á honum. Og loks, er hann tók að losna al- mennilega, rak mannfjöldinn upp slíkt helj- aröskur, að það hlýtur að hafa heyrzt alveg út til Brooklyn. Laggarnir tóku nú lokadráttinn, og far- þegi minn kom allur upp úr. En buxur hans voru stroknar alveg niður af honum, og þarna hékk hann milli himins og jarðar, 15 fet uppi í loftinu, í stuttum, rauðrönd- óttum nærbuxum með buxurnar hangandi á ristum sér. Ég ók svo bílnum út af stétt- inni, og laggarnir létu piltinn síga til jarðar. IV. Leigubíla-akstur getur einnig verið hættulegur. Bílstjórar í næturakstri eru stundum rotaðir og rændir, og öðru hvoru er bílstjóri jafnvel myrtur sökum þeirra vesælu skildinga, er hann kann að hafa á sér. Ég hefi aldrei orfðið verulega fyrir barð- inu á slíkum peyjum. En einu sinni reyndi þó einn þeirra til að leika þannig á mig. Þetta var kubbslegur náungi, svarthærður og ískyggilegur, sem hafði komið upp í og sagði mér síðan að aka með sig að vega-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.