Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Page 7

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1951, Page 7
Nýjar kvöldvökur © Október—desember 1951 # XLIV, ár, 4. hefti Guðmundur Frímann: Þáttur um Lilju Gottskálksdóttur og Jón bróður hennar. Foreldrar þeirra systkina, Lilju og Jóns, voru Gottskálk bóndi á Mallandi á Skaga, f. 29. ágúst 1789, d. 14. jan. 1862, Eiríksson- ar fSkaga-Eiríks durgs) í Víðidalstungu, Ei- ríkssonar, og Valgerður Árnadóttir í Ennis- koti í Víðidal, Árnasonar í Brekkukoti í Þingi. Gottskálk var launsonur Guðrúnar Arngrímsdóttur lögsagnara í Húnaþingi, en maður hennar hét Olafur Jónsson. Það er sagt um Gottskálk, að hann væri „söng- maður góður, greiðamaður í öllu, er hann mátti, en fátækur og ómagamaður mik- ill.“1) Kona Gottskálks hét Ragnheiður, tal- in hin mesta myndarkona, en heilsuveil, einkum hin síðari ár. Mun það meðal ann- ars hafa verið orsök þess, að Gottskálk tók oftar en einu sinni fram hjá henni með grið- konu sinni, Valgerði, móður þeirra Lilju og Jóns. Jón hefur verið fæddur, eftir því sem ætla 1) Gísli Konráðsson: Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 134. 2) Þetta mun vera rangt hjá heimildarmanni mínum. Veturinn 1898 orti Jón rímur af Hálfdani Brönufóstra (Rvík 1905). í annarri vísu I. rímu segir hann: Verkið þetta vinnst mér ei, veiklast tekur dugur, negla saman Norðra fley, nærri þvi sextugur. Ætti hann því að vera fæddur árið 1837. má, skömmu fyrir 1830,2) en Lilja systir hans var fædd 25. ágúst 1831. Munu þau systkin hafa alizt að mestu upp með foreldr- um sínum, því að Valgerður varð fylgikona Gottskálks bónda upp frá því. Bæði voru þau Lilija og Jón greind í bezta lagi og all- vel hagmælt, en blendin rnunu þau hafa verið að upplagi, eftir sögnurn af þeim skráðum og óskráðum. Þó hefur eflaust ver- ið meira úr því gert, en ástæður voru til. Verða hér týndar til nokkrar stökur þeirra systkina og tildraga þeirra getið, eftir því sem föng eru á. Gefa þær nokkra hug- mynd unt upplag þeirra og æfikjör. Jón Gottskálksson mun liafa verið búlaus alla ævi og blásnauður. Dvaldi hann á ýms- um stöðum í lausamennsku, en lengst í Hraunsseli á Skaga fnú í eyði). Þessa minn- ist hann í vísum þessuin: Hrauns í seli hefur bið halur, Jón að nafni. Armóð dvelur einatt við, öld hann telur Gottskálks nið. Tálga spýtur temur sér, tilber líka stundum: mynda ónýtur mærðir fer, metinn lítils þjóð af er. Um 1870 var Jón í húsmennsku á Ytra- Mallandi á Skaga. Það sama ár fluttu þang- 16

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.