Templar - 20.08.1923, Page 5
Fylgirit Templars 3923
I.
Heimland hinnar nýju siðbótar
Pótt vikingar hamist og vinni sér lönd,
og vopnanna þórdunur syngi,
um skamma stund fegin er högginu hönd,
og hætt er viö pansarinn springi.
Pvi ofstopans vald það er stopult og stökt,
sem stormur í fjalidölum hjaðnar það snögt.
En sannleikinn liíir og lýsir um geim
og leitar upp vísdóminn sannan;
hann fylgir oss gegn um hinn hverfula heim
og huggandi bendir á annan.
Hið sanna er eilíft og algilt þess orð,
sem aldregi þagnar um himin og storð.
(Esaias Tegnér. — M. J.).
Meðan »vopnanna þórdunur« sungu lagið
við dauðadansinn á vígvöllunum miklu i Norð-
urálfu, þá er blóð miljóna ílóði, og skuggar
hörmunganna lágu þungir og dimmir yfir
þjóðunum, — þá stóð í hinum nýja heimi