Templar - 20.08.1923, Blaðsíða 14
12
Fylgirit Tcmplars 1923'
stolnuðu þær konur síðar mesta og öflugasta
kvennfélag heimsins: »Hvíta bandið«.
Hið mikla og sigurríka kirkjulega bannfé-
lags-starf í Ameríku á rót sína að rekja til
Bænafuudar á móti vínsölunni,
sem háður var í Oberlin nefnt ár (1893),
Fáeinir alvarlegir og einhuga menn komu
saman í einni kirkju borgarinnar. Peir féllu
fram umhverfis »gráturnar« og báðu þess upp-
hátt hver eftir annan að guð mætti frelsa
Ohío og alt landið frá valdi vínsalanna. Tár-
in streymdu frá augum þeirra.
Þessum mönnum var það ljóst, að þeir
sjálfir sem kristnir menn hefðu verk að vinna
í þessu efni, og að kristnir menn ættu að
gera það, sem þeir gætu, til þess að vinna
sigur á vínsöluvaldinu.
í stað þess, að fylgja eingöngu málefnum
ýmsra félaga og stjórnmálaflokka, ættu þeir
að gera þetta mál að sameiginlegu velferðar-
máli allra.
Sambandið gegn vínsölunni
(eða á ensku máli: Anti-Saloon League) var
þessi félagsskapur nefndur.