Templar - 20.08.1923, Blaðsíða 49
Fylgirit Templars 1923
47
stjórnar að heimta, að grundvallarreglu þess-
ari sé framfylgt; í þessu efni ættu og allar
þjóðir, sem eiga áfengisbannlög, að taka hönd-
um saman, svo að grundvallarregla þessi geti
náð fullri viðurkenningu i 'alþjóðalögum«.
óhætt er að fullyrða, að margar miljónir
bannmanna út um heim líta á málið á þenn-
an veg, og fyrir því mun verða gert alt, sem
hægt er að gera, til þess að fá viðurkenningu
í alþjóðalögum fyrir þeirri sjálfsögðu megin-
reglu, að hver þjóð á að hafa hið fylsta frelsi
til þess að lögleiða hjá sér algert bann gegn
áfengum drykkjum, og að slíkar tiltektir, sem
Spánn nú hefir sýnt gagnvart íslandi, verði
framvegis óhugsandi meðal siðaðra manna.
— Og að lokum vildi eg sagt hafa:
Pjóð, pú, sem hafðir framsýni til þess fyrst
allra þjóða í Norður-álfu, að banna með lög-
um tilbúning, aðflutning og sölu áfengra
drykkja. Dagurinn kemur, pá er margar aðrir
þjóðir munu fylgja dœmi pínu. Pví ríður á
að láta ei undan, þó ofurvald rísi á móti þér.
Og meðan verið er að búast þér iil hjálpar
í öðrum löndum, á vel við, að alt sé gert sem
hœgt er að gera á íslandi, til þess að hið
t