Templar - 20.08.1923, Page 6
4
Fylgirit Templars 1923
annað strið, sem ekki skóp neyð og kvöl,
sorg eða dauða, heldur þjóðarheill og ham-
ingju út um fylki hins mikla lýðveldasam-
bands í Norður-Ameríku. Og ef segja má,
að stríðið í Evrópu hafi afarmikla þýðingu
fyrir yfirstandandi ög ókominn tíma, þá er
það alveg vafalaust, að stríðið mikla við á-
fengisbölið sé stórviðburður í sögu alls heims-
ins. Bandaríkin í Ameriku hafa hafið stríð
þetta, unnið sigurinn mikla og lýst yfir því,
að haldið muni verða áfram, þar til áfengis-
vald heimsins er undir lok liðið.
Bölið var ægilegt í Bandaríkjunum. Árið
1914 drukku menn þar í landi 2,252,272,765
gallons1) af áfengum drykkjum. Hefði því
verið skift jafnt niður á alla ibúa landsins,
þá hefðu það orðið
$5 lítrar á hrert mannsbarn.
Árlega keyptu Bandaríkjamenn áfengi fyrir
um 50 miljarða króna. Fyrir hvern íbúa var
það um 150 krónur á ári, en ef reiknað væri
fyrir hverja fjölskyldu að meðaltali, þá hefði
það orðið
1) 1 gallon = 4l/s liter.