Templar - 20.08.1923, Side 12
10
Fylgirit Tcmplnrs 1923
Bindindisfélögin, sem hófu hið mikilvæga
starf sitt i Ameriku árið 1808, gerðu sitt ýtr-
asta til þess að bjarga þeim mörgu, sem eit-
urstraumarnir spiltu. En sárt var það að sjá,
að meðan verið var að bjarga einum manni
frá drykkjuskaparbölinu, komu margir aðrir
nýir í hans stað að krönunum.
Þá er leið á fyrri hluta 19. aldar, skildu
bindindisvinir það, að það sem varð að gera,
ef ráða skyldi bót á þessu heljarböli, var það
*
að loka krönanum!
Með öðrum orðum: Bann varð að lögleiða
gegn tilbúningi, aðflutningi og sölu áfengra
drykkja.
En hver átti að gera það stórverk?
Bindindisvinir voru að eins lítill hópur, en
vald vínsalanna ógurlegt.
Um nokkurt áraskeið hugsuðu bannmenn,
að það, að stofna sérstakan pólitiskan bann-
flokk, væri örugt ráð til sigurs. Sumir helztu
menn meðal bindindis- og bannvina beittust
fyrir því, og haustið 1869 var í Chicago stofn-
aður bannmannaflokkur. Flokkur þessi hét á
ensku