Templar - 20.08.1923, Page 27
Fylgirit Templars 1923
25
Hið nýja bæjarfangelsi í Birmingham (íbúar
220,000) hefir stað autt í meir en ár, og mörg
héraðsfangelsi eru líka tóm«.
Frá Idaho. Fylkisstjórinn, Mr. D. W. Davis,
segir:
»Það er ekkert efamál, að bannið hefir gert
gagn. Margar þúsundir af borgurum vorum
hafa haft beint eða óbeint gagn af því, að
áfengisverslunin var lögð niður. Vér þekkjum
nokkur dæmi þess, að ólögleg áfengissala
hefir átt sér stað, en þetta getur ekki byrgt
»roða hins ^ja dags«.
Jafnvel i þeim fylkjum sem seinast fengu
bannið, er árangurinn góður«.
Brykkjuskajmr minkar stórkostlega.
Það sem hefir hina mestu þýðingu er það,
að drykkjuskapur um alt land hefir slórkost-
lega minkað og ástandið er alt af að batna.
Vorið 1922 gaf Roy Haynes, aðalumsjónar-
maður bannlaganna í Bandaríkjunum, út op-
inbera skýrslu um árangurinn af starfi sinu.
Mr. Haynes hefir umboðsmenn i öllum fylkj-
unum, og er gagnkunnugur ástandinu.
Mr. Haynes kemst að þeirri niðurstöðu, að
neytendum áfengis í öllu landinu hefir fækk-