Templar - 20.08.1923, Síða 33
Fylgirit Templars 1923
31
um til Bandarikjanna síðan 1919 má sjá á
skýrslum þeim, sem út eru gefnar af Board
of Trade. Síðan 1919 hefir fluzt frá löndum
Breta til Kúbu, Mexiko, Kanada, Bahama-
eyjanna og Bermuda 5,519,215 gallons af
brendum drykkjum (spirits)«.
Þar sem skýrsla þessi tekur ýfir svo að
segja allan innflutning til þeirra staða, sem
smygla til Bandaríkjanna, enda þótt auð-
vitað talsvert aí innflutningnura sé drnkk-
ið á stöðunum og ekki smyglað, þá er fróð-
legt að líta á þessar »afarmiklu« tölur.
Skift á árin 1919, 1920, 1921 og 1922 verð-
ur þetta, sem andbanningar segja að sé svo
voðalega mikið, þó ekki meira en
1,379,804 gallons á ári.
En taki maður þessu til samanburðar skýrslu
Bandaríkjanna yfir notkun brendra vina á
timanum fyrir bannlögin, t. d. 1917, þá er hún
164,665,246 gallons á ári,
eða meira en 122 sinnum meira en þetta.
Andbanningarnir auglýsa, að hin ólöglega
áfengisverzlun sé mjög mikil: þeir gera sitt
bezta til þess að auka hana, en samt sem áð-
ur verður hún að eins smáræði samanborið
við það, sem áður var lögleyft.