Sumargjöf - 01.01.1905, Page 16

Sumargjöf - 01.01.1905, Page 16
14 sjálfri sér. (Samgíldislögmálið). Tvö hugtök geta ekki verið samgild, nema þau iiafi sama innihald. Það er þá aðeins eitt hugtak, en sinast tvö, áður en sannséð var að þau hefðu sama innihald. Af því sést að þau má setja hvort i annars stað, og þau hugtök, sem skifta má um án þess hugsunin skekkist, þau eru samgild. Til dæmis má taka: ferhirningur með andlægum hlíðum samsíða (p^)og ferhirningur með andlægum hlíðum jafnstórnm eru samgild liugtök, því að innilialdið er sama, en látið í ljós i tvennan hátt.— Aldrei má samtengja hugtök, sem eru livort annars neitun. Þá mundu allir hlæa að mér, ef ég færi að tala um þrístrendan sivalning eða góða ílsku eða dautt líf. (Mótsagnarlögmálið). Það var einkum þetta lögmál, sem Zeuo neitti í vörn sinni firir kenningu annaí's mans. — Setjum að ég komi inn í jaósthúsið og spirji: »A ég bréf?« »Nei!« »Segirðu satt?« »Nei!« »Þá iilít ég að eiga bréf«. Þetta seinasta segi ég af því, að ég get ekki liugsað mér neitt þar á milli. Annaðhvort á ég þar bréf, eða ég á það ekki. Tvö- f'öld neitun (þ. e. þegar neitun er neitað) játar (Lög- málið um annaðhvort — eða). — Eigi að hugsa rétt, má ekki brjóta neitt af þessum lögum. En i því er fólgin sú krafa, að biggja alla dóma og áliktanir á ástæðum. Þetta, sem nú liefir verið talið er, annar fóturinn undir allri þekkingu. En hún hoppar ekki á einum fæti. Ef ég sæi ekki né heirði né skinjaði neitt eða irði var við, þá væri ég varurðalaus, en ai' þvi að hugmindir og hugtök eru af þeim runnin, þá hefði ég engin hugtök til að sameina eftir þessiun lögum. Ég verð þvi að athuga, hvað fram fer um- hverfls mig, ef ég vil verða fróður og vitur. Rök- semdakrafan nær einnig ril þessarar athugunar. Þar

x

Sumargjöf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumargjöf
https://timarit.is/publication/547

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.