Sumargjöf - 01.01.1905, Side 37

Sumargjöf - 01.01.1905, Side 37
keinur reyndar, en hefir þá kostað oi' raikið; stundum gildir það lifið. Börnunum er kendur kristindómur, en i raun og veru lítið gert til að bæta hugarfarið eða uppræta það, sem hverjum einum er ílf meðiætt. Ég' held varla að nokkur maður sé svo vondur að eðlisfari, að uppeldið gæti ekki gert hann góðan. Ef ég væri trúmaður núna, mætti sannarlega segja, að ég væri iðrandi syndari; svo sárnar mér nú ýmislegt, sem ég hefi gert. Jafnvel sáriðrast ég eftir að ég stríddi stundum krökkum, sem ég lék mér við og fór illa með smaladreng föður míns, mesta meinleysing, sem aldrei jafnaði á mér gúlana, hvað vondur sem ég var, þótt hann væri miklu stærri og sterkari. Ef ég á að deyja nú, og Jivort sem er, þá óska ég einskis fremur, en geta beðið fyrirgefningar alla, sem ég hefi reynzt vondur. Oft hugsa eg um stúlkuna, sem við mættum á Austurstræti, þegar þú misstir stafinn. Þykir þér ekki svipurinn hennar fallegur? Ég er viss um að liún er engill, ef nokkur kona verðskuldar að kallast svo. Eg er nú farinn að halda stundum að þú hafir haft rétt fyrir þér. Hver veit líka, nema ég væri allur annar nú, ef----------en ég get það ekki. Þú veizt hver ég var og hver hún var. Auk þess hefði það verið hreinasta synd af mér, eins og hagur minn stóð* Það var lieldur engin vissa, bara grunur þinn. En ef þið lifið bæði lengi, þá getur þú sagt henni löngu, löngu seinna, að þessi auðnulausi maður liafi liugsað run hana fram í andlátið og elskað hana út af lifinu. Mundu eftir að segja það ekki of snennna. Nú get ég ekki skrifað meira. Ég liefi verið 2 daga með þetta bréf, ekki lengra en það er. Berðu kveðju til allra vina minna, sérstaklega til Olafs og 3*

x

Sumargjöf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöf
https://timarit.is/publication/547

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.