Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 30

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 30
á sínum tíma, að mikið var skrifað um hana í blöðin. Við heimkomu skipsins frá Austurlöndum þann 27. júní 1912, skrifar einn hinna við- stöddu í Politiken á þessa leið: „Hjartnæmari móttökur hefir ekk- ert skip fengið en Selandía og mót- taka skipshafnarinnar verður í minn- um höfð, þegar allar móttökuveizl- urnar í erlendum höfnum eru falln- ar í gleymsku.“ Og meðal skipshafnarinnar voru þeir menn, sem undanfarna fjóra mánuði höfðu nótt og dag, öðrum fremur, borið hitann af erfiði, ábirgð og taugaspennu, — mennimir við mótorana í Selandíu. Þessi djarfa til- raun hvíldi að ekki svo litlu leyti á þeirra herðum, hún mátti ekki mis- takast. Vélstjórarnir höfðu litla reynslu við gæzlu svona véla. Þeir höfðu að vísu sína verklegu og bók- legu menntun, sem þeir studdust við, en urðu í þessari ferð að safna sér reynslu til þess að miðla öðrum — og reynslu fengu þeir í ríkum mæli. Þessi tilraun tókst með ágætum og áttu vélstjórarnir þar sinn góða og sögulega hlut að. Þúsundir hafa síð- an fetað í þeirra spor, vélstjórar sem hafa fengið það hlutskipti að gæta hinna mörgu dieselvéla í skipum sem síðan hafa verið smíðuð. A 50 ára afmæli Selandíu var mik- ið skrifað um hana í dönsk blöð. Eru Danir mjög hreyknir af þessu afreki hinnar miklu skipasmiðju sinnar B & W, og mega líka vera það. Hún hefir með þessu framtaki sínu fært dönsku þjóðinni bæði frægð og fé. Danska vélstjórafélagið gaf út sér- stakt afmælisblað af tímariti sínu „Maskinmesteren". Er vakin athygli á því hve mikinn þátt danskir vél- stjórar og tæknifræðingar áttu í um- bótunum á fyrsta aldursskeiði þess- ara véla. Eru þar birtir kaflar úr bréfum og skýrslum frá vélstjórun- um sem þar voru að verki. Kemur þar margt fram sem sýnir að þeir hafa orðið að taka marga harða „törn,“ þó að ánægjulegt væri hins vegar að eiga hlutdeild í þessu mikla verki. Fyrstu mótorskipin voru svo að segja undir smásjá tæknifræðinga og útgerðarmanna um mikinn hluta heims. Það var því hagsmuna og metnaðarmál bæði verksmiðjunnar og eigendanna að allt gengi snurðu- laust. Það lenti hins vegar á herð- um vélstjóranna að lækna eða leggja á ráðin um lækningu barnasjúkdóm- anna, sem munu hafa verið ærnir fyrst í stað, áminstir bréfkaflar vitna um það. Um seinni ferðir Selandíu er þetta sagt meðal annars: Þegar Selandía hafði verið í förum í 12 ár og siglt samtals 600,000 sjómílur, skrifaði yf- irvélstjórinn í eina skýrslu sína. „A undanfömum 12 árum höfum við einu sinni verið 10 daga í höfn þar sem teljandi viðgerð fór fram á vél- unum. Við höfum oft komið austan frá Bangkok til Kaupmannahafnar og farið þangað aftur eftir 1 til 2 daga viðdvöl.“ Árið 1937 þegar Selandía var 25 ára gömul, var hún búin að fara 55 ferðir til Bangkok og til baka aftur. Sigld vegalengd var yfir 1 miljón sjómílur, eða 6 sinnum vegalengdin milli tunglsins og jarðarinnar. Hún var ennþá gott skip. Olíueyðslan til allra véla hafði fallið úr 152 gr í 140 gr á hestorkustund. Meðaltals viðhaldskostnaður á öllum vélunum á ári hafði reynst um 1000 sterlings- pund. Selandía hafði gert meira en að uppfylla þær vonir sem til henn- ar voru gerðar í upphafi. Hún var — „alle tiders skib“ — eins og þar er komist að orði. Selandía var síðar seld til Noregs og fékk þá nafnið „Norseman“ og þaðan til Finnlands og þar var hún skírð „Tornator“. Á stríðsárunum. þ. 30. janúar 1942, strandaði hún á skerjum nálægt Yokohama í Japan. Skipið brotnaði í tvent en allir menn björguðust. Þannig lauk æfi þessa margumtalaða skips réttum 30 árum eftir að hún fór í fyrstu reynsluför. Höfundur greinarinnar í Maskin- mesteren líkur máli sínu með nokk- urri viðkvæmni í röddinni á þessa leið: „Ekkert skip hefir aukið eins hróður Danmerkur og Selandía. Það mun ávallt verða sigurhljómur um þetta nafn. Um sigur lítils lands yfir þjóðum allrar veraldar, — ekki um sigur valdsins og sverðsins, heldur mannsandans, tækninnar, hand- verksins, sigur friðarins í þjónustu bræðralags allra þjóða heims.“ Hallgr. J. 36 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.