Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 8
8
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
að verða þeim öldruðu hér til mikillar
blessunar og létta þeim tilveruna. Og
ekki má gleyma að á neðri hæð sund-
laugarinnar erum við með stóran sal
þar sem fólk getur verið með boccia,
púttað, spilað golf, billiard og borð-
tennis. Þar er líka pdukast og krikket.
Þannig er á sama tíma hægt að vera í
boccia, pútta og vera í pílukasti, borð-
tennis og billiard, svo engum ætti að
leiðast í stöðinni og hver sem burði
hefur til á að geta fundið þar eitthvað
við sitt hæfi. Sagði og einn gamall
maður sem virti fyrir sér aðstöðuna
þarna fyrir pílukastið: „Eiginlega
hlýtur að vera viðeigandi að halda á
ölglasi hér!“ En hvar er þá aðstaðan
fyrir pöbb?!“
Innangengt frá Hrafnistu,
Skjóli og Norðurbrún 1
„Og ekki vil ég láta undir höfuð
leggjast að minna á að þessi glæsilega
aðstaða er hugsuð sem upplyfting fyr-
ir alla íbúa Hrafnistu í Reykjavík, á
Skjóli og í Norðurbrún 1, enda er inn-
angengt í sundlaugina frá þessum
þremur heimilum svo veður munu
ekki hamla að fólk geti komið þang-
að. Sundlaugin og endurhæfingarað-
staðan er enda byggð upp samkvæmt
þeirri reynslu sem fengist hefur af
sundlaug, endurhæfingarmiðstöð og
leikfimisal á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Sjúkraþjálfarar syðra og sjúkraþjálf-
arar hér, frábært fólk og ríkt af
reynslu, aðstoðaði með því að miðla
okkur af þessari reynslu og þekkingu
og í samræmi við þær ábendingar var
byggt."
„Horft til hafs“
„En nú erum við teknir að horfa til
þess að 1998 verður Sjómannadag-
urinn 60 ára og erum farir að hug-
leiða hvað við ættum að gera þá. Við
höfum hug á að leita aftur til erlendra
aðila eins og við gerðum 1988 og
reyna að fá hingað til lands á Sjó-
mannadaginn erlend seglskip og ger-
um okkur vonir um að sú málaleitan
fái einhverjar undirtektir. Þá höfum
við lengi harmað að þegar við litumst
um á hafnarvæðinu í Reykjavík, þá er
þar ekki að finna neina styttu sem sér-
staklega er reist sjómönnum og sjó-
mennsku til heiðurs. En þá gerist það
fyrir um það bil tveimur árum að
Olafur Egilsson sendiherra kom að
máli við mig og sýndi mér styttu sem
unnin hafði verið af Inga Þ. Gíslasyni
á sínum tíma, en hann var bróðir Vil-
hjálms Þ. Gíslasonar, Gylfa Þ. Gísla-
sonar og þeirra bræðra. Myndin sýnir
tvo sjómenn sem rýna undir lófa sér
út í fjarskann og heitir myndin „Horft
til hafs.“ Við ákváðum að láta gera
myndarlega afsteypu af myndinni og
afhjúpa hana á sjálfan afmælisdaginn
1998. En nú hafa atvikin hagað því
svo að við ætlum að vera í fyrra fall-
inu með þetta og afhjúpa myndina
þegar á Sjómannadaginn í ár. Er stytt-
an nú í afsteypu í Chalford í Englandi.
En ég vil árétta að þótt styttan verði
afhjúpuð nú þá rís hún eigi að síður í
tilefni af sextíu ára afmælinu og raun-
ar einnig í tilefni af 80 ára afmæli
Reykjavíkurhafnar, sem er í ár. Hafn-
arstjóm hefur tekið vel í að ljá falleg-
an stað undir styttuna sem er á Mið-
bakkanum við Reykjavíkurhöfn, en
fegurri stað getur varla hér í borg.
Mun Hafnarstjórn meira að segja
leggja til undirstöður undir þetta lista-
verk og Eimskip hefur heitið ókeypis
flutningi á því til landsins.“
Af framkvæmdum við
Hrafnistuheimilin
„Sem áður horfum við til framtíðar
og sjáum að líða tekur að því að áfram
verður að vinna að endurbótum á
Hrafnistu hér í Reykjavík. Þótt miklar
endurbætur hafi þegar farið fram þá
þarf að endurnýja ýmsa innviði og
einnig þarf að taka hér í gegn þök og
hús að utan. Þá höfum við sótt til
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis-
ins um heimild til byggingar, fram-
kvæmda og reksturs á nýrri hjúkrun-
arálmu við Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir 90 hjúkrunarsjúklinga og einnig
um að byggja hér við Hrafnistu í
Reykjavík hjúkrunarálmu fyrir 60
manns. Við höfum nú ekki fengið
mjög jákvæðar undirtektir enn, en við
vitum að það eru um 200 manns sem
eru í mjög brýnni þörf fyrir að komast
í hjúkrunarpláss hér í Reykjavík og
annar eins fjöldi hefur mjög brýna
þörf fyrir vistun á heimili sem hér. En
við verðum því miður að bíða og sjá
hvað setur í þessum efnum.
Ef við nú víkjum að Hrafnistu í
Hafnarfirði, þá eru þar miklar fram-
kvæmdir sem þörf er á utanhúss
vegna steypuskemmda sem komið
hafa í ljós. Veldur þetta því að við eig-
um ekki annan kost en þann að klæða
húsið að utan á næstu tveimur árum. -
En við Hrafnistu í Hafnarfirði eru
miklir möguleikar fyrir hendi hvað
þjónustuþáttinn varðar. Vonumst við
til að geta aukið verulega byggingar
sem henta því fólki sem ekki þarf á
annarri þjónustu að halda en til dæm-
is mat og möguleika á aðstoð ef með
þarf. Yrðu slíkar byggingar með þjón-
ustuhnappi sem tengdur verður við
vaktstofu, ef eitthvað óvænt kemur
upp á. Marga möguleika er annars
verið að íliuga hvað Hrafnistu í Hafn-
arfirði snertir. Ekki er tímabært að
greina frá þeim öllum hér, en það mun
væntanlega skýrast fyrir vorfund Sjó-
mannadagsráðs.“
Nýjungar á döfínni hjá
happdrætti DAS
„Okkar helstu fjáröflunarleiðir
hafa verið Happdrætti DAS sem stutt
hefur mjög vel við bakið á okkur og
lítum við á hvern þann sem þar kaup-
ir miða sem stuðningsaðila. Segja má
að happdrættið hafi gengið nokkuð
vel og um þessar mundir er dregið
fjórum sinnum í mánuði og vinnings-
upphæðir hverju sinni miðaðar við
fjórar milljónir. En nú byrjar nýtt
happdrættisár í maí og ætlum við þá
að ráðast í enn stærri hluti en til þessa.
Er það von okkar að þær ráðstafanir
verði til þess að örva enn söluna, afla
meiri fjármuna og stuðla að skjótari
framgangi þeirra málefna sem Sjó-
mannadagsráð hefur helst unnið að.
Önnur fjáröflunarleið okkar, Laug-
arásbíó, hefur gengið vel og er sú
starfsemi sem þar fer fram vaxandi,
en segja má að þar sé búið að taka alla
salina í gegn og að þar sé komið
hljóðkerfi af fullkomnustu gerð, hið
svonefnda THX-digital, og er ég
sannfærður um að A-salurinn eða
stóri salurinn með sínu stóra og mikla
tjaldi er skemmtilegasti kvikmynda-
salur landsins.“