Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Side 12
12
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Hrafnista í Hafiiaifirði. Vonir standa til að hægt verið semfyrst að byggja hjúkrunarálmu fyrir 90 manns við þetta glæsi-
lega heimili, en öll stoðaðstaða er fyrir hendi. (Ljósm. Sjmdbl. AM)
til þess að mæta slíkri stækkun, því
stoðdeildir eru fyrir hendi. Sem Hafn-
firðingur vona ég að sjá þann dag
renna að Garðabær og Hafnarfjörður
sjái sóma sinn í því að bygga hvor
bær sína hæð og þá þriðju kynnum
við að geta reist með okkar góðu sam-
starfs- og stuðningsaðilunum. Þarna
sé ég möguleika til lausnar öldrunar-
málunum á Stór- Hafnarfjarðarsvæð-
inu.
En að allt þetta skuli hafa verið
mögulegt ber að þakka velvilja fólks
allt í kringum okkur og kem ég þá um
leið enn að þætti okkar frábæra starfs-
fólks.
Það sem ef til vill brennur mest á
okkur nú er að endurbyggja Hrafnistu
í Reykjavík, því segja má sem svo að
meðan herbergi á Hrafnistu í Reykja-
vík eru um tíu fermetrar að stærð eru
herbergi á Hrafnistu í Hafnarfirði tutt-
ugu og fimm fermetrar. Vafalaust hafa
herbergin í Reykjavík þótt stór á sinni
tíð, eða fyrir 40 árum. Margt hefur
verið rætt um þennan stærðarmun á
herbergjum. Litlu herbergin eru hlý-
leg og stundum hefur það hvarflað að
mér að það hve smá þau eru, verði til
þess að fólkið fer meira út að blanda
geði við aðra, sem er ekki lítils virði.
Herbergin verða þá fyrst og fremst
svefnherbergi. En í Hafnarfirði, í
meira rými, finnst mér eins og fólk
dvelji meira inni á herbergjum sínum
og noti sér því minna en skyldi félags-
lífið þar, sem er mjög öflugt. Geta
menn svo velt því fyrir sér hvort betra
sé fyrir þann aldraða.
En engu að síður verður ekki fram
hjá því horft að nú vill fólk hafa meira
í kringum sig — það vill hafa sinn ís-
skáp, sjónvarp, myndbandstæki og
fleira. Því leikur enginn vafi á því að
fara verður að breyta Hrafnistu í
Reykjavík á þann hátt að herbergin
fyrir hvern einstakling séu stærri.
Þetta þýddi að vísu fækkun á pláss-
um, en áður höfum við verið beðnir
að bíða með þetta. En það breytir ekki
því að það hefur aldrei verið ætlun
okkar að heimilin yrðu gamaldags og
því mun koma að þessari framkvæmd
fyrr eða síðar — vonandi fyrr, enda
hefur mikil þróun til bóta átt sér stað í
málefnum aldraðra í Reykjavík og
víðar sem ætti senn að gera það
kleift.”
Met marga hluti á annan
hátt en ella
“Hvað minn þátt í þessu varðar þá
hef ég áður látið þess getið hverja
ánægju ég hef haft af að taka þátt í
allri þessari uppbyggingu. Ég kom að
þessu starfi af sjónum, en ég hafði afl-
að mér menntunar í matreiðslu og
hótelstjórn erlendis í þrjú ár og lengi
verið bryti á skipum Eimskipafélags-
ins. Ég tel það af því góða að ég skuli
koma af sjónum eins og nær allir for-
ystumenn Sjómannadagsins, en
menntun mín erlendis hefur þó orðið
til þess að ég met marga hluti á annan
hátt en ella. Kannski er ég agaðari og
stundvísari fyrir vikið og geri jafnvel
sömu kröfur til umhverfisins. Það
hefur komið mér vel í þessu starfi. Og
sem betur fer hef ég haft hreint frá-
bært samstarfsfólk og á þá ekki síst
við hina daglegu stjórnendur, þá sem
með fjármálin fara, matvælahliðina