Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 15
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
15
hæðin tvöfaldast. Þannig hefur lægsti
vinningur til þessa verið 20 þúsund en
sá hæsti 4 milljónir. I lok happdrættis-
ársins, sem jafnan er í lok aprfl, höf-
um við svo verið með sérstakan „gull-
vinning" og var þá möguleiki á að
hljóta 10 milljónir á tvöfaldan miða
og var sá vinningur dreginn út 29.
apríl sl. Var heildarverðmæti vinninga
í þeim útdrætti 21 milljón á móti 10.7
milljónum ella, eins og ég gat um.
A síðasta happdrættisári buðum
við Færeyingum að spila með í fyrsta
skipti og voru undirtektir þeirra ákaf-
lega góðar. Fór þetta fram með þeim
hætti að við sendum þeim miðana
með upplýsingabæklingi og póstgíró-
seðli á færeysku og vil ég taka fram
að við höfum átt mjög gott samstarf
við Póstgíróstofuna í Færeyjum. Hafa
enda margir góðir vinningar farið til
Færeyja, því auðvitað sitja allir við
sama borð, íslenskir sem erlendir. Vil
ég í framhaldi af þessu láta þess getið
að við höfum hug á að bjóða fleiri út-
lendingum sem af íslensku bergi eru
brotnir þátttöku, og er nú verið að
vinna að því. Verður gaman að sjá
hvemig það æxlast.
En á því happdrættisári sem nú er
hafið höfum við enn breytt til. Við
höfum nú fjölgað vinningum yfir 40%
og höfum ákveðið að hækka aðal-
vinninginn upp í 40 milljónir. Þessi
stóri og mikli vinningur verður dreg-
inn út í lok happdrættisársins, eins og
hingað til. Og áfram verður möguleiki
á að kaupa tvöfaldan miða og tvöfalda
þannig vinningsupphæðina.
Við vonum að þessari miklu ný-
breytni okkar verði vel tekið, bæði
heima og erlendis, því 80 þúsund
miða upplag eins og er hjá okkur er
hlutfallslega ákaflega fá númer miðað
við það sem gengur og gerist erlendis.
Fyrir vikið eru möguleikamir líka
miklu meiri á að hljóta vinning — og
einkum mun útlendingunum verða
það ljóst.“
Við þökkum Sigurði Ágúst fyrir
þetta stutta en skorinorða spjall og
tökum undir óskir hans um að menn
taki nýbreytninni vel því hver kaup-
andi happdrættimiða hjá DAS gerist
sjálfkrafa stuðningsmaður aukins ör-
yggis og aukinnar velferðar aldraðra á
íslandi.
Sendum öllum sjómönnum árnaðarósiir
á íiátíðisdecji þeirra
Vesturgötu 16-101 Reykjavík - Sími 551 4680 / 551 3280