Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 22
22
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Séra Arni Bergur Sigurbjörnsson blessaði hina nýju byggingu og þá sem þar
eiga eftir að leita sér líkamlegrar og andlegrar hressingar. (Ljósm. Sjómdbl.
Björn Pálsson)
var vígt. Fyrir 30 árum var hafin
smíði G- álmu, byggðar sérstakar
hjónaíbúðir við Jökulgrunn fyrir 25
árum eða 1972. A því ári var Sjó-
mannasamtökunum afhent lóð undir
Hrafnistu í Hafnarfirði og sú bygging
vígð fyrir 20 árum eða 1977 og fyrir
15 árum, 1982, hafin bygging vernd-
aðra smáíbúða við Boðahlein.
Með þessari glæsilegu byggingu,
hverrar verklokum við fögnum í dag,
eru húsakynni þau sem Sjómanna-
dagssamtökin hafa byggt fyrir aldraða
26.500 fermetrar að gólffleti og um
80 þúsund rúmmetrar. Ekki eru þá
meðtalin 56 raðhús við Naustahlein
og Boðahlein í Hafnarfirði, 60 raðhús
og íbúðir við Jökulgrunn og Klepps-
veg 62.
1971 urðu miklar umræður í Sjó-
mannadagsráði um byggingu sund-
laugar hér við Hrafnistu og komu
fram þrjár tillögu þar um. í fyrsta lag
sundlaug og gufubað, í öðru lagi
sundlaug og kapella og í þriðja lagi
sundlaug úr plasti sem verða mundi
ódýr og geta enst nokkuð lengi. Þess-
ar tillögur náðu ekki fram að ganga,
enda settist þáverandi gjaldkeri, Guð-
mundur Oddsson, ofan á tékkheftið
og tillögumar. En tímarnir breytast og
mennirnir með.
I Sjómannadagsráði hafði verið
samþykkt tillaga frá stjórn um að leita
leiða til þessarar byggingar. Teikning-
ar voru unnar og kostnaðaráætlun og
þetta lagt fyrir Byggingarnefnd aldr-
aðra á vegum Reykjavíkurborgar.
Nefndin fjallaði um málið á nokkrum
fundum og eftir ýmsar lagfæringar og
breytingar samþykkti nefndin teikn-
ingarnar fyrir sitt leyti og féllst á að
ekki væri óeðlilegt að samtökin leit-
uðu til borgarinnar um frekari stuðn-
ing við þetta verk.
Þann 5. maí 1994 undirritaði þá-
verandi borgarstjóri Arni Sigfússon
fyrir hönd borgarsjóðs samning við
Sjómannadagsráð um styrkveitingu
til sundlaugarbyggingarinnar að upp-
hæð 85 milljónir króna, en kostnaðar-
áætlun þá var 141.8 milljónir króna
og var þá miðað við 900 fermetra
gólfflöt og 3.300 rúmmetra. Síðar tók
stjórn Sjómannadagsráðs ákvörðun
um að stækka aðstöðu sjúkraþjálfunar
um 600 fermetra og 2000 rúmmetra.
Við þetta hækkaði kostnaðaráætlunin
í 206 milljónir. 15. júlí 1994 tók borg-
arstjórinn í Reykjavík, frú Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir fyrstu skóflustung-
una að þessari endurhæfingarmiðstöð
og þá hófust jafnframt jarðvegsfram-
kvæmdir. Skilst mér að það hafi verið
eitt af fyrstu embættisverkum núver-
andi borgarstjóra.
Endurhæfingarstöðin er byggð þar
sem hún tengist Hrafnistu, Skjóli og
Norðurbrún 1. Áætlað er að íbúar
allra þessara húsa ásamt íbúm annarra
nærliggjandi húsa geti notið endur-
hæfingaraðstöðunnar hér. Húsið er
tvær hæðir, neðri hæðin niðurgrafin
og þangað er aðgangur frá Hrafnistu
og Skjóli. Einnig eru þar tæknirými,
eimbað og fjölnotasalur sem ætlaður
er fyrir Boccia, pútt og billiard og
borðtennis, svo eitthvað sé nefnt.
Málaðar hafa verið vallarlínur fyrir
Boccia og golf og gerðar sex holur í
gólfið fyrir púttið.
Lyfta og tveir stigar tengja kjallara
við efri hæð. Efri hæðin skiptist í tvær
einingar, sundlaug og endurhæfingu,
anddyri hússins skiptir þessum ein-
ingum, en þar er einnig aðgangur frá
Norðurbrún 1.
Sundlaugareiningin samanstendur
af búningsherbergjum, sturtuklefum,
sundlaugarsal með 16.33x7 metra
stórri sundlaug þar sem dýptin er 1.1-
1.6 metrar. I sundlaugarsalnum eru