Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 25
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
25
ráðs fyrir framsýni hennar og fram-
tak. Hafði hún meðferðis samning
borgarinnar við Sjómannadagsráð
um rekstur heilsuræktarstöðvarinnar
sem undirritaður var við þetta tæki-
færi.
Nú kvaddi sér hljóðs heilbrigðis-
og tryggingaráðherra, frú Ingibjörg
Pálmadóttir. Kvaðst hún viss um að
þessi glæsta heilsuræktarstaða ætti
eftir að auka bjartsýni manna, þrek og
þor í ókominni framtíð. „Það er reisn
yfir öllu sem Hrafnistumenn gera,“
sagði ráðherrann. Færði hún stöðinni
nokkra fjárupphæð frá Heilbrigðis-
ráðuneytinu sem nýtt skyldi til sund-
þjálfunar.
Síðastur sté í stólinn Sverrir G.
Meyvants og ávarpaði gesti fyrir hönd
vistmanna. Sverrir sagði m.a.:
„Kæru vinir, góðir gestir. Nú er
langþráður draumur okkar heimilis-
manna hér á Hrafnistu orðinn að veru-
leika. Það er opnun þessarar glæsi-
legu sundaðstöðu sem blasir hér við
okkur. Það var í júlí 1994 að fyrsta
skóflustungan var tekin og ég ætla
ekki að fara að fjölyrða um þetta því
þið hafið gert þessu öllu full skil.
En eitt vil ég að komi fram og það
er þakklæti og aftur þakklæti frá okk-
ur heimilismönnum á Hrafnistu til
þeirra sem að þessu hafa staðið. Og
megi þeir njóta okkar bestu þakkar-
óska fyrir framtakið.“
Dagskránni lauk með því að Söng-
félag eldri borgara söng eitt lag, en að
því búnu bað kynnir viðstadda að
ganga um sali og kynna sér hina
glæsilegu aðstöðu, um leið og Sjó-
mannadagsráð þakkaði mönnum
komuna. Því næst var öllum boðið að
þiggja veitingar, súkkulaði með rjóma
og vel útilátnar kræsingar sem brytinn
á Hrafnistu, Magnús Margeirsson
hafði tilreitt.
Engar ýkjur eru þótt sagt sé að það
hafi verið hrifnir og djúpt snortnir
gestir sem gengu út úr ylnum í húsi
nýju sundlaugar- og heilsuræktarað-
stöðunnar við Hrafnistu í Laugarásn-
um þennan svala vetrardag.
AM
%. Sjómannadagunnn %
60. hóf sjómanndagsráðs á Hótel íslandi
laugardaginn 31. maí 1997
Dagskrá:
Húsiö opnaö kl. 19:00.
Guömundur Hallvarösson,
formaöur sjómannadagsráös,
setur hófiö.
Kynnnir kvöldsins veröur:
Þorgeir Ástvaldsson.
Fjöldi glæsilegra
skemmtiatriða:
Kvöldveröartónar:
Haukur Heiöar Ingólfsson.
Söngsystur.
Braggablús: Glæsileg söngbók
Magnúsar Eiríkssonar.
Stórhljómsveit Gunnars
Þóröarsonar.
Sniglabandiö
leikurfyrir dansi til kl. 03:00.
Verð: Kr. 4.900 fyrir manninn.
ts kh /f k ..
JÞ . .-V',
A
Söngsystur
Söngvararnir í Braggablús
JÍÍatseSill
Xarrýlöguð austurlenskfiskisúpa.
Jíeilsteifctur lambavöðvi
meSjylltum jarðeplum, smjörsteibtu
gmnmeti og Madeira piparsósu.
SúbklaMjúpud pera og sérrí-ís.
Sniglabandið
MIÐASALA OG
BORÐAPANTANIR
ALLA DAGA
KL. 13-17.
SÍMI 568 7111.