Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Side 56
56
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
8. desember 1996
Það slys varð um borð í ms. Silke-
borg um miðnætti sunnnudaginn 8.
desember að 45 ára maður, Einar Ingi
Friðriksson, lést í vinnuslysi er skipið
var statt í Livorno á Italíu. Silkeborg
hét áður Laxfoss, en var nú í leigu hjá
danskri útgerð og hafði verið í sigl-
ingum milli Ameríku og Suður-Evr-
ópu.
Slysið varð með þeim hætti að ver-
ið var að opna aksturshlera á skut
skipsins þegar slaki kom á vír. Talið
er að vírinn hafi slegist í Einar heitinn
með þeim afleiðingum að hann lést
samstundis.
Einar Ingi var fráskilinn og lætur
hann eftir sig þrjú börn.
11. desember 1996
Skipverji á Þorsteini EA-810 frá
Akureyri, Unnar Arnórsson, fórst eft-
ir að hann féll útbyrðis af skipinu um
kl. 7.30 miðvikudaginn 11. desember.
Þorsteinn EA var að veiðum um 65
mílur austsuðaustur af Reyðarfirði
þegar slysið varð. Um 7-8 vindstig
voru á þessum slóðum um þetta leyti.
Landhelgisgæslunni var gert viðvart
um kl. 7.30 og var áhöfn þyrlu henn-
ar kölluð út. Um það bil sem þyrlan
var tilbúin barst tilkynning um að
maðurinn hefði fundist og örskömmu
síðar að hann væri látinn.
Skipið sigldi með hinn látna til
Eskifjarðar þar sem rannsókn fór fram
á tildrögum slyssins. Unnar heitinn
var 37 ára að aldri, til heimilis að
Bakkasíðu 3 á Akureyri. Hann lætur
eftir sig konu og tvö börn.
5. mars 1996
Það slys var þann 5. mars 1997 að
bátsmann á varðskipinu Ægi, Elías
Örn Kristjánsson, tók út þegar verið
var að freista að koma taug yfir í
þýska gámaflutningaskipið Vikartind
sem strandað var við Þjórsárósa.
Hafði aðalvél skipsins bilað og akker-
isfestar þess slitnað. Varðskipið hafði
tvívegis reynt að koma vírum yfir í
Vikartind og var það í síðari tilraun-
inni að brot reið yfir varðskipið með
þeim afleiðingum að Elías heitinn fór
útbyrðis. Öðrum skipverjum, 19 tals-
ins, var bjargað um borð í þyrlu Land-
helgisgæslunnar TF-LIF, og gekk það
giftusamlega og má kallast sannarlegt
björgunarafrek. Mikill fjöldi björgun-
armanna gekk sanda í leit að Elíasi og
þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði úr
lofti en án árangurs.
Elías Örn Kristjánsson var 30 ára
að aldri til heimilis að Vindási 3 í
Reykjavík. Hann og sambýliskona
hans áttu tvö böm, tæplega tveggja
ára stúlku og þriggja ára dreng.
9. mars 1997
Tveir menn fórust sunnudagsmorg-
uninn 9. mars, þegar flutningaskipið
Dísarfell fórst 100 sjómflur suðaustur
af Hornafiði. Leki er talinn hafa kom-
ið að skipinu sem lagðist senn á hlið-
ina og skolaði hinum 12 áhafnar-
mönnum í sjóinn, en vonlaust var fyr-
ir þá að komast í björgunarbáta.
Vonskuveður var á og ölduhæð mikil
og voru mennirnir tvo tíma í sjónum
áður en þyrlu Landhelgisgæslunnar
bar að sem bjargaði tíu af mönnunum
lifandi. Munaði miklu að mennimir
kræktu saman handleggjunum og
héldu þannig hópinn. Einn hafði orð-
ið viðskila við hópinn og var honum
bjargað fyrst. Gekk vel að hífa menn-
ina upp úr sjónum og var hér um ein-
stakt björgunarafrek þyrlumanna að
ræða, hið annað á aðeins fimm dög-
um. Lík beggja hinna látnu náðust,
annað um borð í þyrluna en hitt um
borð í nærstatt skip, Hegranes.
Skipverjarnir tveir sem fórust hétu
Páll Andrésson 38 ára og Óskar Guð-
jónsson 59 ára.
Páll Andrésson var 1. stýrimaður á
Dísafelli, fæddur 22. desember 1958
og lætur eftir sig eiginkomu og tvö
börn.
Óskar Guðjónsson var matsveinn á
Dísarfellinu. Hann var fæddur 1.
október 1937 og lætur eftir sig eigin-
konu og tvö uppkomin börn.
Þess skal getið hér að þann 7. ágúst
1996 féll ungur Svíi, Leif Johan Carl-
son, útbyrðis af Gylli Is-261 suðvest-
ur af Heimaey. Þar sem Leif Johan var
af erlendu þjóðerni skráist hann ekki
meðal þeirra sjómanna sem farist hafa
hér við land frá því er síðasta Sjó-
mannadagsblað kom út.
Skoðun og viðgerðir GÚMMÍBÁTA allt árið
Önnumst einnig viðgerðir á flot- og
BJÖRGUNARBÚNINGUM.
GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjarslóð 9 • Örfirisey
Sími: 551 4010