Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 84
84
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Hér erþað hákarlasókn sem Geir sýnir gestum sínum — járnkrókur með traus-
tri keðju festri við. Sjóklœðin sem Geir klœðist gera myndina jafn sannfœrandi
og hún hefði verið tekin fyrir öld síðan. (Ljósm. Sjómdbl. AM)
dálítið um þetta einstæða mann-
virki þegar við litum við hjá honum
í fyrrasumar, en um sex þúsund
manns hafa heimsótt búðina árlega.
„Upptökin að þessu voru þau að
þeir Erlendur Sveinsson og félagar
hans hugðust fara að gera kvikmynd-
ina „Verstöðin ísland“ og fannst fara
vel á að kvikmyndin hæfist hér í Bol-
ungarvík, þar sem hér er elsta ver-
stöðin á landinu. Hér í Bolungarvík
hafði að vísu áður verið til verbúð til
skamms tíma en hún hafði orðið að
víkja fyrir skipulaginu. En þegar þetta
kom til sáum við að upplagt væri að
reisa verbúð að nýju og þá hérna í
Osvörinni og kom það sér þá vel að
viðirnir úr gömlu verbúðinni voru enn
til. Einnig sáu menn að slík verbúð
gæti haft aðdráttarafl fyrir ferða-
menn.“
Vorskipið Ölver
„Nú, og það er ekki að orðlengja
það að hafist var handa við að reisa
húsin og torfveggjahleðsluna annaðist
Sveinn Einarsson frá Hnjóti. En aftur
á móti var það ég sem lagði til svo að
segja alla sýningarmunina, en ég var
mjög ungur þegar ég byrjaði að viða
að mér gripum sem tengdust sjósókn
fyrri tíma. Eg endist ekki til að telja
upp allt það sem ég safnaði, en þar á
meðal voru allra handa dufl úr tré,
skrínur sjómanna, lýsislampar, ífærur
og sóknir hákarlamanna, netaflot og
sökkur og svo framvegis.
Þá var afráðið að hér við búðina
skyldi standa skipið Ölver sem er í
eigu Byggðasafns Vestfjarða, en Bol-
ungarvík er aðili að því safni. Skipið
varð í rauninni upphafið að Byggða-
safni Vestfjarða, en það var Bárður
Tómsson skipaverkfræðingur, sem
var á Isafirði, er fékk Jóhann Bjarna-
son skipasmið á Isafirði til þess að
smíða bátinn. Var ákveðið að báturinn
skyldi verða með sama lagi og vor-
skipin svonefndu í Bolungarvík voru.
Þetta voru skip sem ekki var byrjað að
róa á fyrr en á vorin og voru þau tals-
vert léttari en þau sem róðið var á um
vetrartímann. Hér er um að ræða
sexæring með hinu svonefnda Bol-
ungarvíkurlagi. Því miður misstum
við frá okkur tvö gömul skip með
þessu lagi er hérna voru til. Annað var
í vörslu Þjóðminjasafnsins og tókst
svo slysalega til að það brann þar. Hitt
er Sfldin sem staðsett er suður í Bjarn-
arhöfn, en það er í eigu Hildibrandar
Bjarnasonar bónda þar. Það skip var
sérstaklega smíðað fyrir Bolvíking
einhvern tíma um 1830, þótt síðar
væri honum breytt, hann borðhækk-
aður og sett í hann vél. Náttúrulega
höfum við feikilegan áhuga á að fá
hann aftur hingað til okkar. Hann er
nokkru stærri en Ölver og lagið á hon-
um eldra.“
Fanggæslan hreppti
vænsta fiskinn
„Hér við Ósvararbúð hefur verið
reistur myndarlegur hjallur þar sem
við þurrkum fisk. Segja má að hjallur-
inn hafi einkum verið fyrir formann-
inn, því hjalloftið notaði formaðurinn
sem geymslu fyrir útgerðina og þótt