Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 89
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
89
Sjómannadeginum var „Amarrím.“ Það
var samið í tilefni af 50 ára afmæli Sjó-
mannadagsins. Verkið er skrifað fyrir
blandaðan kór. Það er samið við ýmsar
vísur og kvæði eftir Örn Arnarson skáld.
Eins og áður hefur komið fram var
Sigfús með fjölmargar málverkasýning-
ar, og hann segir skemmtilega sögu af
vini sínum Guðmundi H. Oddssyni, hvar
hann gefur honum mynd, sem hann hafði
málað af báti sem var að sigla leiðina inn
í Vestmannaeyjahöfn. Og Sigfúsi segist
svo frá: „Einu sinni sem oftar kom ég
heim til hans og sá þá hvergi myndina.
Ég spurði: „Hvar er myndin sem ég gaf
þér?“ „Hún er niðri í kjallara,“ svaraði
Guðmundur. Ég spurði hvers vegna hún
væri þar. „Það er ekki hægt að hafa hana
uppi. Þetta er enginn sjór.“ Þetta opnaði
augu mín fyrir því sem þarna vantaði. I
heilt ár eftir þetta fór ég og horfði á brim-
ið og einnig þótt ekki væri brim, aðeins
til þess að fylgjast með öldunni, hvernig
hún hnígur að landinu, upp að klettunum
eða sandi, hvernig hún braut og hvernig
lægi var. Ég málaði svo mynd af þessu í
dágóðu brimi hér inni í Sundum með Esj-
una í baksýn. Ég fór svo með myndina til
Guðmundar og spurði: „Er þetta sjór?“
„Já, mikið fj... hefur þú náð þessu vel.“
Við skiptum svo á myndum, ég gaf hon-
um myndina af briminu en tók hina til
baka.“
Fjögur voru lögin sem Sigfús hafði til-
einkað Sjómannadeginum. Stjóm sam-
takanna hafði ákveðið að ráðast í útgáfu
þeirra, og fyrir um ári fengum við Sigurð
Björnsson söngvara í lið mpð okkur til að
sjá um framkvæmd verksins og em hon-
um færðar bestu þakkir. Sigfús var við-
staddur upptökurnar og lét vel af. Við
hittumst svo á fyrstu dögum vetrar, end-
anlegur frágangur geisladisks og umbún-
aðar var á lokastigi. Hann var glaður og
ánægður. Hans óskir voru uppfylltar
hvað áhrærði útgáfuna. Hann hafði nokk-
uð látið á sjá frá því myndirnar voru
teknar við ankerið á Hrafnistu í Reykja-
vík í september síðastliðnum.
Að leiðarlokum þakka ég fyrir hönd
sjómannasamtakanna Sigfúsi Halldórs-
syni fyrir þá samleið sem hann átti með
íslenskri sjómannastétt og votta aðstand-
endum hans okkar dýpstu samúð.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannadagsráðs
Sendum ölíum íslensfium
sjómönnum árnadarósfir
á íiálídisdeiji þeirra
TÆKNIÞJÓNUSTA
SIGURÐAR ÞORLEIFSSUNAR
STRANDGÖTU 11 - 220 HAFNARFIRÐI — SÍMI 54255
"b Blikktækni ehf
BLIKKSMIÐJA HAFNARFJARÐAR
FASTEIQNA A SKIPA9ALA
BÆJARHRAUNI 22 HAFNARFIRÐI S: 565-4811
Yá
FLUTNINGSMIÐLUNIN
JOINAR
LL. -U
LUNIN
URT7