Blanda - 01.01.1923, Síða 12
6
jólfur S.S. og Margrét Halldórsdóttir, til uppfósturs
og undirvísunar hér í Skálholti á sumurin, en við og
við í Bræðratungu. En á veturnar1) komu þau honum
i kennslu og disciplinain fósturs og framfærisí heiður-
legum samastað að Lundi í Lundarreykjadal vestur í
Borgarfirði undir tilsögn, hönd og aga heiðurlegs kenni-
manns séra Eyjólfs Jónssonar, nú í drottni hvílanda,
hver sérdeilis lag og gáfu hafði til börnum og ung-
mennum að kenna, og heiðurlegrar ektakvinnu Katrínar
Einarsdóttur, nú þar eptir látinnar ekkju, hverja guð
náðarsamlega blessi og huggi; og var þessi litli Þórð-
ur þar á Luudi í kennslu og tilsögn rudimentorum
örammaticæ, Januæ og annara latínumálsins upptaka
til að læra og nema i fjóra samfleytta vetur, og komst
þvf orð á fyrir guðs náðargáfu, að hann þótti vel til
bóknámsins hæfur að næmi og skilningi, ekki síður en
hver annar hans jafnaldri, en var hór í Skálholti hjá
sínum móðurforeldrum á sumartímanum, komandi sér
við alla, bæði þar og hér í allra bezta máta, sem einu
siðprúðu, lastvöru og heiðurlegu ungmenni vel ber og
sómir, bæði að geðferði, spöku, hægu og gallaláusu,
skikkanlegri og siðsamlegri umgengni og dagfari. £>ess
í miðli kallaði guð af þessum heimi til síns eilífa frið-
ar og sælu hans móðurmóður Margrétu Halldórsdóttur,
eptir langsamlega mæðu og þjáning, hvað hór í Skál-
holti skeði þann 21. Julii Anno 1670 með gleðilegum
og kristilegum afgangi, látandi eptir sig af sinum niðj-
um þennan eina sinn óskason og erfingja. Nú sem
þessu framfór, sem skrifað er, um uppvöxt þessa sæla
ungmennis, að hann tók til að vaxa að aldri, viti og
náð hjá guði og mönnum, og sýndist vera að flestum
hlutum hið gæfulegasta og gerfilegasta ungmenni og
mannsefni, þá leizt vorum guði annað ráð fyrir honum
1) Svo hdr,