Blanda - 01.01.1923, Page 60
54
sál. Hákonar1 2 3) sagði Gróu minni0), að kerling gömul,
móðir Sesselju í Garðhúsum, er eg man til, hefði sagt
eptir annari kerlingu, að full sáta heys hetði í henn-
ar tíð verið slogin á Kirkjuskeri, sem nú fer í kaf i
hverjum stórstraumi, og þá hefði varla verið klyfja-
fært milli Þvottakletta og búðarbakkans, sem nú er
að 30 faðma rúm í millum, eu sandur skemmir þó
enn meira, þvi að í þau 50 ár, er eg veit til, hefur blásið
af norðurtúninu til vissu kýrfóðursvallarstærð auk
skemmda, sem garðafærslur sýna. Heyrt hef eg, að
þær 3 jarðir Stóra- og Lítla Sandhöfn og Kirkjuhófn
hafi allar verið 60 hudr. að dýrleika og Kirkjuhöfn
þeirra fyrst lagzt í eyði, að kirkja hafi þar staðið, ept-
ir að jörðin lagðist i eyði, en ofnaumt mun tilnefnt
timatalið á annað hundrað ár síðan5) því nefnd Ingi-
gerður sál. vissi að eins til, að uppblásin mannabein í
hennar minni hefðu verið flntt til Kirkjuvogskirkju og
lögð þar í kirkjugarð og eru þó siðan full 100 ár. JÞað
er nokkurnveginn víst, að Litla Sandhöfn kgðist sein-
ast i eyði; sagt er mér, að ekkja hafi átt, hún verið
8 hudr., gefin af henni Viðeyjarklaustri og hún moð
því móti síðar orðið kougseign.4)
Bæjarleið sunnar með ströndinni fen Merkinesj er
1) Hákon Vilhjálmsson dó 1821.
2) Gróa Hafliðadóltir kona Brands var mesta yfirsetu-
kona og mcrkiskona (j- 1855).
3) Hefur lagzt í eyði um 1660 (sjá síðar).
4) Frá [h. v. eptir aukahlaði með hendi höf. I>ar getur
hann og þess, að hann hafi á „landcommissiþingi á Járn-
gerðarstöðum 1801 séð í bók hjá commissariis Kirkjuvog
nefndan tyrir norðan Ósa ár 1516, sem mig minnir og
þar i gelið eyðijarða Haugsendu hér og Arnagerðis" [Detta
bréf ekki kunnugt nú, en ártalið gseti verið skakkt t. d,
1616].