Blanda - 01.01.1923, Page 63
57
brunahraun. Pr& Kirkjuvogi til syðsta tanga þess
mun vera um 21/.. míla vegar, en írá Kalmanstjörn
til Grindavíkur 2 mílur og er það þjóðvegur, liggur
til landsuðurs. Anuar vegur liggur frá Höfnum til
kauptúnsins Keflavíkur í norður nær l1/;, mila lang-
ur. Hiskafli er þar flelzti bjargræðisstofn manna; sjó-
menn eru þar í betra meðallagi og sjósókn, langræði
mikið, en optast með landi suður. Fiskur gengur á
öllum árstímum, belzt með stórstraum; menn hafa tok-
ið eptir, að austangöngur með sílhlaupum koma helzt
með góu og þeirn straumnum, líka stundum siðar ; vest-
angöugur, sem eru sjaldgæfar fyrri, lenda einkum í
röat; þorskur, ýsa, keila, þyrslingur, skata, karfi,
lauga eru þær fiskitegundir, er veiðast á færi og öngla,
líka hákarl nokkuð, við audþót og stundum stjóra. —
Sundið í Kirkjuvogi er þrautgott, en langt og ógur-
iegt í briraum, snúningar eru á því lakari og lending
háskasöm; eru þar blindsker fyrir sunnan sundið
spottakorn. í Merkinesi er lakara sund, en lending
um flóð betri. Bæði liggja sund þessi til austurs í land
til þess við er snúið og haldið í suður. Sundið á Kal-
manstjörn liggur í sömu átt, er stutt, þröngt og slæmt
1 brimum, en beint.
Útsker er fyrir innan nyrðri ónda bergsins og
fikammt frá landi, sést á það með hálfföllnum sjó;
það heitir Eyrarsker. Önuur útsker eru ekki með
ii'Qykjanesi Hafnamegin. En Eldey er klettur stór í
hafinu i vestur frá Reykjanesi um 3 vikur sjávar;
það er mestpartinn hengiberg með fáum hillum; að
austan má lenda við klöpp í ládeyðu, og er þvert
niður með henni 9 faðma djúp. Skerjahryggur með
2 ósum inn i liggur hálfhring til útnorðurs og vesturs
frá nefndri klöpp; tvö sker eru í boga þessum, hann
kemur upp með háifföllnura sjó. Klöppin er um 3 eða
4 ljábrýnur að stærð eða 80 ferskeytta faðma. Klettr