Blanda - 01.01.1923, Side 111
105
liana og Iugibjörg dót.tir þeirra, voru þá að flytja sig
frá Stórholti að Hvammdalskoti. Margt kvað Jón þar,
bæði um Einar saung og fleiri. Þar bjó þá á hálfu
landinu Kristján sonur Björns, er siðast bjó í Litla-holti,
og varð þar bráðkvaddur, — Kristján var bróðir Guð-
bjargar, konu Jóns Magnússonar, er fyr var nefndur.
Þá var á vist með Kristjáni Tómas Guðmundsson, er
síðar var kallaður víðförli af flakki sínu. Tómas var
allvel hagmæltur og vel greindur, hefði hann farið
betur með það síðar, en var drykkfeldur og auðnu-
lítill; lenti hann síðar á flakki um Strandasýslu og víðar,
allt fram yfir 1874; frá honum mætti margt segja.
Þeir Jón og Tómás kváðu margt saman. Bæjarbrag
kvað Jón þar, Reipabrag og margt fleira. Einar
saungur hafði tínt reipum, og var mikið að þeim leit-
að, og eftir spurt. I Reipabrag leitar hann að þeim
um allan heim; en margir konuugar og þjóðhöfðingjar
höfðu komizt yfir þau, og urðu blóðugar styrjaldir út
úr þeim, því allir vildu fá slíka dýrgripi. Konuugur í
Frygiá misti 12 kappa sina, er þá voru mestir í heimi,
i einum Reipaslagnum. I þessum ferðum finnur Einar
alla konunga, syngur fyrir þá og þiggur af þeim
stórgjafir. Síðast fréttir Einar til reipanna hjá Ára-
sjóla; þangað fer liann, og eru þá reipin þar, en til
þess að fá að losast þaðan sjáifur, verður hann að
gefa Árasjóla reipin; er hann þá gerður Riddari af
Djöflaorðunni. Skiidu þeir svo aldavinir og mæitu til
vináttu með sér, er þeir héldu til dauðadags, en ekki
vildi Árasjóli heyra saung Einars.
Ekki var Jón nema tvö ár hjá Einari saung. Eór
bann þá 1845 til Jóns Magnússonar bónda að Hvamms-
dalskoti, er fyrr var nefndur. Hjá honum var hann
afla stund, þar til hann gekk að eiga dóttur hans
Ingibjörgu, 1854, stúlkuna, sem hann sá fyrst í Stórholti,
þá er hann leysti upp bagga Einars. Kom þar fram