Blanda - 01.01.1923, Page 112
106
draumur Jóns á Víkurdal um peningana 15, því þau
Jón og Ingibjörg áttu síðan saman 15 börn, semsíðar
verður sagt.
Þau Jón og Ingibjörg fiuttust norður í Steingrims-
fjörð 1856, og voru þar 2 ár. Þar kvað Jón rimur af
Salus og Nikanor, tvennar Formannavísur, Hraknings-
rímu Jóns Guðmundssonar á Hellu, og margt fleira.
Þá var á Hafnarbólmi frændi Jóns, Þorlákur Hálfdan
Guðmundsson. Hann var talinn með bestu bagyrðing-
um uorður þar og braðkvæður mjög. Kvað bann oft
margt til gamans, skrifaði fátt af þvi og safnaði engu,
sem var þó skaði, því margt kvað bann vel. Hann
var karlmenni að burðum og duglegur til vinnu. Kona
bans var Steinunn Sæmundsdóttir saungmanns bins
mikla á Gautsbamri á Selströnd, Björnssonar prests í
Tröliatungu. Þorlákur varð bráðkvaddur að Horni á
Hornströndum vorið 1869. Þeir Þorlákur og Jón
kváðu margt saman á Hafnarhólmi. Þar bjó þá Jör-
undur Gíslason auðga frá Bæ á Selströnd, Sigurðsson-
ar, er átti Guðbjörgu Jónsdóttur prests, síðast á Sönd-
um í Dýrafirði, Sigurðssonar. Jörundur var binn besti
karl, vandaður og að öllu góður drengur, en opt varð
honum báskalega mismæli, og var tíðum margt eftir
bonum baft af þesskyns bögumælgi, og kvað Þorlákur
þar sálm, sem enn er til, iit af frásögn Jörundar um
erfi og útför Gísla auðga í Bæ föður sins. Sálmurinn
er 10 vers, og byrjar þannig:
Valtur mjög er veraldar auður,
virðar segja faðir minn dauður
liggi og sé lagður í foldu,
lílcast til er ausinn þar moldu.
Vorið 1858 fór Jón með Ingibjörgu konu sína að
Fitjum i Vatnadal í Staðarsveit í Steingrímsfirði. Þar
bjó þá Árni Jónsson, náfrændi Ingibjargar, konu Jóns.
Á Fitjum í Vatnadal bygði fyrstur Jón Hannesson,