Blanda - 01.01.1923, Síða 114
108
JÞetta vor (1859) fluttu þau Jón og Ingibjörg að
Rauðamýri á Langadalsströnd við Isafjarðardjúp, og
voru þar eitt ár. Var þar þá eitt liið mesta aflavor,
og óvanalegt heilagfiski. Þá fengust 2 hvalir í Mjóa-
fjarðarmynni, sem voru rónir upp til Vatnsfjarðarness,
og þá taldir eign Vatnsfjarðarkirkju. Á Rauðamýri
kvað Jón rírnur af Illuga Gríðarfóstra og enn fleira.
Vorið 1860 flutti Jón út í Bolungarvík, og var þar tvö
ár. JÞar kvað hann rímur af Kára Kárasyni, rímur
af Knúti helga, um leiðangur hans og æfilok, út úr
Knytlingasögu. Þar lcvað Jón og tvennar formanna-
vísur og þann alkunna Bolungarvíkurbrag og sveitar-
rímu. Bolungarvíkurbragiun gaf hann séra Þórarni
Böðvarssyni í Vatnsfirði. Verbúð þá hina nýju, er
séra Þórarinn lét byggja í Bolungarvík, og sem Gunn-
ar Halldórsson, síðar alþingismaður, var i, meðan hann
var formaður fyrir séra Þórarinn, léði hann Jóni til
íbúðar; átti Jón að passa alt og líta eftir öllu við búð-
ina, en ekki þurfti hann að gjalda húsaleigu, en Ingi-
björg kona Jóns var fanggæzla hjá Gunnari vetur og
vor, en svo eru nefndar konur þær í Bolungarvík, sem
hafa á hendi alla matreiðslu og þjónustu fyrir skips-
höfnina og eftirlit og hirðingu á afla (fangi) þeirra,
þegar á sjó er farið. Margt fleira fékk séra Þórarinn
af ljóðmælum Jóns, og er mælt, að hann hafi haft
gaman af mörgu þvi; gaf hann Jóni oft það, er hann
skorti helst, svo sem skinn, feitmeti, o. fl. Laungu
síðar kvað Jón nýjan Bolungarvíkurbrag 1907; var þá
orðið þar margt mjög umbreytt, eins ogsjá má af báðum
lýsingunum, þegar bragirnir eru bornir saman, því öll-
um ber saman um það, að lýsingarnar séu báðar rétt-
ar, hvor á sinni tíð. Þennan nýja brag gaf Jón Pétri
Oddssyni kaupmanni í Bolungarvík, því altaf var Jóm
mjög hlýtt við það Hafrafellsfó!k,fráfornritíð; þó mun Jón
hafa haft me3tar mætur á Guðmundi Oddssyni á Hafra-