Blanda - 01.01.1923, Page 120
114
alt tíl skila kornið, þó hann gæti ekki skilið það, ó-
mentaður maður; sýndi þá Jónatan honum, að hann
hefði rétt fyrír sér, og var fljótur að; út úr því varð
þá þras nokkuð, en síðar urðu þeir vinir og héldu því.
iPegar Jónatan kom í Bolungarvík á Ströndum, þá
var þar alt niður nítt. i?ar byggði hann stórt og vænt
íbúðarhús, mjög vandað að smið, og talið 1600 króna
virði, eftir þeirrar tíðar mati. Fjárhús byggði hann
þar við sjó niðri; var það slegið saman af bjálkum
úr rekaviði. Hann smíðaði líka nýjan bæ á Bolung-
arvikurseli, fyrir mann, er þar settist að fyrir utan ós-
inn. Svo sraíðaði hann nýjan bæ á Leiru i Leiru-
firði, fyrir Elias Ebenesersson, er þá var þar. Bæ
snsíðaði hann á Höfðaströnd fyrir Arnór Hannesson,
prests Arnórssonar. Sá bær þótti einkar vandaður og
vel innréttaður. Elju hans og starfi var alstaðar við i
brugðið. Öll verk hans þóttu staklega vel vönduð.
Margt fleira smiðaði hann af ýmsum húsgögnum, og
sætir það furðu, hvað hann afkastaði svo stutta stund,
sem hann var á Ströndum, sem voru ekki full 6 ár;
þá var hann formaður við Djúp 3 ár af veru sinni á
Ströndum. Júlíana ekkja hans fluttist síðar i Dýra-
fjörð með dætrum sínum Gróu og Ingibjörgu. Giftist
Júliana þar aftur Hákoni Pálssyni ekkjumanni, og lifði
hún hann. Dætur hennar Gróa og Iugibjörg giftust í
Dýrafirði, en Rannveig flutti suður, og Júlíana til
hennar.
2. Eggert, dó í æsku. ,
3. Jónína, fædd á Hafnarhólmi við Steingrímsfjörð,
17. september 1856. Hún kom fullorðin að tsafjarð-
ardjúpi, fór þá að Eolafæti og giptist þar 1880 Einari,
syni Jóns Jóhannessouar, er lengi bjó á Fæti, og Gróu
Benediktsdóttur. Þau bjuggu á Kleifum í Seyðisfirði,
og þar dó Einar 24. april 1908. Þau áttu saman 10 börn,
og urðu 6 þeirra fullorðin. Jónína var ágæt hæfileika-