Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 124
118
Hér skal nú geta nokkurra drauma Jóns, er hann
hefur sjálfur ritað, því upp á suma drauma sína hef-
ur hann haldið. Þegar Jón kom fyrst til veru að
Rauðamýri, sem fyrr er getið, þá var óminnilegur
heilagfiskisafli í Bolungarvík, það vor; fór Jón því út
þangað að fá sér róður, en þá fyrstu nótt, sem hann
var þar á Mölunum, dreymir hann, að hann sé að
vakna af svefni, og liggur þá hægri fótur hans hjá
honum. Þykir honum hann vera tekinn af sér í ökla-
lið; þá þykist hann kalla á hjálp og biðja að geyma
vel fótinn, þar til hann verði látinn undir sig aftur.
Þá þykir honum koma til sín maður og ljá sér hækju,
og segir, að hann verði um tíma að ganga við hana,
en hann skuli geyma vel fótarius, og líka segist hann
geta látið fótinn við á sinum tima. Kvaðst hann heita
Guðmundur og vera úr árbænum (sem er torfbær á
Mölunum), en þar var þá enginn Guðmundur. Við
þetta vaknar Jón og þýddi hann þennan draum fyrir
því, að hér mundi sín bíða einhver örlög, og jafnvel
í sama stað, sem hann dreymdi draum sinn, sem og
síðar rættist, Það íhugaði Jón siðar, að hann var á
sama stað, þegar hann dreymdi draum þennan, sem
síra Þórarinn lét byggja sína nýu búð, er hann léði
Jóni, sem fyrr er ritað, og þar kom draumurinn allur
fram, og er frá því áður sagt. ura heilsuleysi konu hans
og allar þær hörmulegu afleiðingar og bágindi þeirra
hjóna.
Annan draum dreymdi Jón síðar, þegar hann var i
Bolungarvík. Hann þóttist vera á sjó undir Stigahlið,
og ótal skip tieiri, öll að halda til lands. Þá sér hann
að eldur kemur upp í einu skipinu fram afsvonefndu
Grjótleiti, og brennur það upp i skyndi. Það þykist
hann sjá að var K'ósin, en svo hét sexæringur einn,
er átti Magnús bóndi i Þjóðólfstungu Árnason frá
Meirihlíð, Arnasonar, en fáum dögum síðar fórst þetta