Blanda - 01.01.1923, Page 131
i2ö
Var orðinn Láaldraður maður, sujóhvítur á hár og skegg,
en þó að sjá léttur á fæti. Gaf hann þá Jóni að skiln-
aði 3 dali í peningum og bað rækilega fyrir honum
og lagði honum mörg heilræði; sagði, að hann mundi
mjög gamall ruaður verða, og margt reyna áður hann
dæi. Hann skildi jafnan biðja guð að glæða alt gott
og fagurt hjá sér, og nruni hann þá jafnan bænheyra
hann. Segir honum að bera vel raunir sínar, ef fyrir
hann komi. Skilja þeir síðan, og er haft eptir Jóni,
að hann hafi mjög klökknað við skilnað gamla Helga.
E'ór Jón svo sem leið liggur að Setbergi, og var hon-
um þar vel fagnað. Áður en Jón átti að fara frá
Setbergi aptur heimleiðis, voru honum gefin þar ný
föt, nærföt góð, tvennir sokkar og góður og hlýr háls-
klútur, og gott nesti. Daginn áður en Jón skyldi
hefja heimferð sína, fékk síra Einar bréf innan úr
Stykkishóimi, þess innihalds, að hann varð daginn
eptir að fara inn í Hólm, og fylgdist Jón inn eptir
þangað með honum; fræddist hann þá vel um veginn
°g plássið á þeirri leið. Þaðan fékk Jón fljóta og
góða ferð inn í Hrappaey, en þaðan flutning upp í
Arnarbæli. Eór hann svo inu á Skarðsströnd, og
komst með heilu og höldnu heirn. JÞetta mátti kalla
hans fyrstu ferð, en þá átti hann margar ófarnar, sem
margt kom fyrir í.
í annan og mestan lífsháska telur Jón sig hafa
komið, er nú skal frá sagt. Jón var í póstferðum með
°g fyrir Eyþór Felixsson (síðar kaupmann í Eeykja-
vík) um 5 ár, sem þá var aðal Vesturlandspóstur. Dá
sat amtmaður Páll Melsted í Stykkishólmi, og var Jón
oft á þeim ferðum næturgestur hjá verslunarstjóra Páli
Hjaltalín, er þar var. Oft fór Jón eina og tvær auka-
ferðir úr Stykkishólmi inn að Hjarðarholti í Laxár-
dal, og stundum inn að Hvammi, ef Þorleifur prófast-
ur Jónsson var ekki búinn að senda póstbréf sín að
(