Blanda - 01.01.1923, Page 188
182
Rikulega um rænugrund,
rétt sem líta kunDÍð,
hefur úr kvásis heitn und
hjartablóðið runnið.
Þróist ræða þessa manns,
þæg og hent að vana,
allir lofi ýtar hans
austra drómundana.
II.
Frásögn Daða hins fróða Níelssonar.
(Eptir J. S. 322 4lo.).
Um vorið 1768 i Majo kom sunnan yfir Breiða-
fjörð stærsti áttæringur, sem var undir Snæfellsjökli,
að sækja þau hjón Eggert vísilögmann og frú Ingibjörgu
með þeirra fylgd og fé. Þennan tima hugðu menD,
að frú Ingibjörg mundi ei vera einsömul. Þennan átt-
æring átti Jón Árnason á Ingjaldshóli, sýslumaður í
Snæfellssýslu. Hann vildi ekki ljá seglið, með því
að það var úr þéttum og sterkum striga, vel vandað;
kvaðst hann, þá skipið léði, það ekki mundi aptur sjá,
„og það get eg bætt mér aptur“ sagði hann, „þó það
farist, en seglið ekki“. En þá þeir, sem með skipið
fóru, sáu, að seglið vantaði, sendu þeir heim til sýslu-
manns, og beiddu um segl, en hann svaraði og sagðist
ekki hafa það segl til, sem þénaði skipinu; fengu þeir
sér þá segl af áttæringi og sexæringi, og höfðu með
sér. Séra Vigfús Jónsson, þá kapellán til Miklaholts,
síðan prestur þar, hafði fengið skipið til ferðarinnar.
Formaðurinn var (xissur Pálsson, aðfaramaður mikill,
en liðsmenn: Jón Arason og Guðmundur Gunnlaugs-
sod, Jón JÞorsteinsson, Guðmundur Jónsson, Eiríkur
Teitsson, Sigmundur Jónsson, Jón Guðmundsson. Þess-