Blanda - 01.01.1923, Page 200
af slysi, því það var aðalstarf Jóds um Jangan aldur,
að gæta kúa bakarans á sumrum í Vatnsmýrinni,
reka þær í haga og heim á kveldin. Aðalsjóndeildar-
hringur Jóns gamla var því kúin bakarans, en svo
hótu Bernhöftskýrnar að jafnaði, einu nafni á máli
Jóns, því hann kunni engan, eða lítinn mun að gera
á kynferði orða, eða á eintölu og fleirtölu; flest orð
voru hjá honum kvenkyns. Af þessu starfi Jóns
gamla var það hans aðalkrafa til samborgara sinna
uugra og eldri, að þær þektu kúin bakarans.
Það var stöðug spurning hans til manna: „hefur
þú ekki séð kúin bakarans11? þegar hann fór að
leita þeirra á kveldin, því gæzlan gekk Jóni fremur
báglega opt og einatt, vegna tafa, fyrirsáta og ýmsra
óleikja, er strákarnir gerðu Jóni, því altaf voru þeir
á hælum hans, hvar sem hanD fór og gekk.
Þyrfti Jón 1 „bakaríinu11 að lýsa kúnum fyrir þeirn,
er hann spurði um þær, þá varð honum ógreitt
um svörin; hann þekti að visu aðallitina, en á
„Skjöldu11 og „Bröndu“ gat hann engan greinar
mun gert. Einhverju sinni varð manni, er Jón
lagði sína venjulegu kúaspurningu fyrir, það á að
spyrja um lit kúnna. Veiztu það ekki helvítan þh'
(það var algengasta blótsyrði Jóns) fimm rauð og eio
hvit.
Einu sinni mætti Jón skólapilti, sem hann hafði séð
koma i bakariið, til vinarbrauðakaupa. Jón spurði
hann „þú hefur vist séð „kúin“ bakarans11. Ó, nei,
svaraði hinn, ég þekki þær heldur ekki, Jón minD.
Þekkirðu hana ekki helv. aulan þín. Þú hefur aldrei
sýnt mór þær, svo ég geti lært að þekkja þær, svar-
aði skólapilturinn. Þá brast Jón þolinmæði, og sagði
með miklum reiðisvip: þarf ég að kenna þér að þekkja
helv. asninn þin; skammast þin vera skólapiltur, og
þekkja ekki kúiu bakarans.