Blanda - 01.01.1923, Page 210
204
„Mln er stjúpa músagrá,
mjög er illileg að sjá,
hún er bráðum fallin frá,
fjörgömul með rauðan skjá“. Og enn:
„Senn mun stjúpa lífið láta
og leysast heimi frá,
Vilhjálmur mun varla gráta,
veizlu fær hann þá,
Hensi hjá Smith. Hinrik þessi Árnason, ætið kall-
aður „Hensi“, var nokkurskonar undirpakkhúsmaður
hjá Smith. Hann var mjög einkennilegur náungi, lít-
ill vexti en knálegur, eldrauður i andliti, því honum
þótti „sopinn" mjög góður.
Hensi var sikátur og spriklaði af fjörinu, og var sjálf-
sagður forkólfur og „fordansari“ á öllum piuböllum,
enda dansaði hann ágætlega. Hensi var þvi hrókur
alls fagnaðar, hvar sem hann var staddur. Hann
hafði mikla rödd, og söng altaf, þegar hann varð
hýr. Yrði Hensi verulega kendur, þá „mareheraði“
hann um göturnar, einkum um bakarastiginn, því hann
átti heima fyrir „ofan læk“, venjulega með brennivíns-
flösku i hægri hendi, sem hann veifaði kring um sig
og brúkaði jafnframt sem nokkurskonar taktstokk. í*á
söng hann altaf með miklum krapti þessa vísu:
Kalifornien er et Land
uden Lige,
der kan hver en Mand
blive rige,
hvis man kender Sand fra Gtuld,
det er Sá’en (Sagen),
saa kan mau bære en Pose fuld
hjem om Dá’en (Dagen).
Öjörólíkur þessum mönnum, sem nú hafa verið
nefndir, var Haldór nefndur Absalon, en hversvegna
veit ég ekki. Hann var einhver fráasti göngumaður