Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 280
272
glaum og flaum. Sbr. Glaumelfur og Glaumbær. Sagn-
irnar merkja líka að hita eða Ijóma (af hita). í þeim
er og staffærslan, er getið var áðan. Mar(r) og mara
er alveg sömu merkingar og þessi orð. Mar heitir hlý-
blik það, sem stundum sér á lopti, þá er gengur úr
frostum til góðs þeys. Mararhláka er glóðheit hláka,
sem gerir marautt og marþítt. Martagl heita ljós ský,
er þjóta hátt á lopti í heiðríkjum og þykja boða storma.
Marlaki er skuggi, flekkur eða ágalli. Að mara merkir
bæði að fljóta i kafi í yfirborði lagar þar, og glóa eða
glita þar; í Snorraeddu kemur fyrir merla.
Erum á leið frá láði
liðnir Finnum skriðnu.
Austr sé ek fjöll af flausta
ferli geisla merluð.
Þessi dæmi nægja til að sýna, að mar gevmir ekki
siður einkunnir elds og sjávar en hin orðin. Ekkimun
þó Marbæli merkja Sólkinsbæli eða vera samheiti Sól-
heima, heldur hefir það nafn sitt af gliti því, sem í
er bleytulandi á sumrin, og gljánni, sem gerir á það
á hauat og vetur, Sömu merkingar eru bæjanöfnin
Glöra (Árness.), Grilla (Árness.) og Grillir (Árness.,
Húnavs. og Skagafs.), því þau munu öll hafa nafn sitt
af bleytu, er marar i, glórir í eða grillir í i jörðunni,
og ennfremur GlitstaÖir (Mýras.), sem réttu nafni heitir
Glýstaðir, af glýr sama sem glær eður sjór, báðar
myndirnar af glóa (sbr. hlóa, hlýja og hlæja, hlýr(r)
og hlær(r).
Ágangur vatns og veðra á jörð lætur eptir sig auð-
kenni núnings og uppblásturs. Af þeim einkennum taka
bæir nöfn t. d. Núningur (Eangárvs.) og enn fremur:
Grindill (Skagafs.), merkir urinn stað, af sögninni grinda,
grind, gratt, grundum, grundinn, sem merkir að skaka,
spilla, mala, meiða. Sögnin er skiljanlega sjaldgæf, en
altíð orð af stofnun hennar, t. a. m. grand, þ. e., 1, korn,