Blanda - 01.01.1923, Page 289
281
þeir komu úr. JÞeir komu úr sannnefndu fjallaveri, og
hafa kallað sig og héraðið ekkert annað en Öives og
Ölvesja, að dæma af latínskan Ceasars á nöfnunum.
Ekki veit eg alp koma fyrir í ísl. heitum öðrum en
Ölfus, nema einu til. Það er fjallvegur, er iiggur af
jafnsléttu Vallna inn á milli Sandfells og Hattar ofan
i Reyðarfjörð; er ekki nema yfir lítið varp að fara
fjarðarmeginn í dalnum og kemur þá ofan á undirlendi
Reyðarfjarðar. Vegurinn kallast Hjálpleysa; rétta nafn-
ið er, vitaskuld, Aipleysa. fjallleysa. Það er eini veg-
urinn af Héraði ofan í Ejörðu, sem ekki er yfir fjall
að fara. Þá Austfirðingum fyrndist aip, gerði hjálp úr
því til skilningsbótar, þótt veginum væri þar með
lýst þveröfugt við það, sem rétta nafnið ber honum
Það er fróðlegt að draga sér í dilk bæina, sem hafa
heiti af öðru en beint staðháttaauðkennum, svo sem
veðráttufari eða landkosta rýrð og ókosta, þótt fæst
séu nöfnin vandskilin. í veðráttudilkinn kæmi þá þessi:
Alviðra, Fok, Hviða (Árns.), Elautafell í Þistilfirði,
Gaul (Snæfs.), Hreggnasi (Isafs.), Stribeygingsstaðir
°g Veðramót (Skagafs.), Útnyrðingsstaðir í Múlassýslu,
Vindás (viða), Vindbelgur(Þings.s.), Vindborð(Skaptafs.),
Vindfell (víða), Vindheimur og Þyrill í Hvalfirði. Af
sólskini eða sólskinsþurði: Sólheimar (Skaptafs.), Sunnu-
dalur i Vopnafirði, Sólbrekka (Grullbr.-Kjóss.), Eor-
sæludalur (Húnavs.), Skuggahlíð (Múlas.s.), Skugga-
þjörg (Skagafs.); Skuggahverfi í Reykjavík, líklega af
öðrum toga spunnið. Af regni eða þoku: Sudda (Borgfs.),
Villa (Árness.), Vætuakrar (Suæfs.). Af logni eða skjóli:
Vindhæli (Húnavs.), Heljarvík á Hornströndum og
Heljarstaðir (Árness.). Á Heljarvik er rétta nafnið
Hœlarvík samkv. jarðabókum og Eornbréfasafninu (DI,
IV,) og þá er nafnið auðskilið. Hælarvík merkir skjóls-
vík. Það er alltítt í íslenzku, þótt málfræðisbækur getj
þess lítt eða ekki, að sama orðið eigi sér tvö kyn,