Blanda - 01.01.1923, Page 294
286
hefur hann, þá á 19. aldursári, farið að Leirái'görðum til
að nema þar bókband hjá Jóni Gottskúlkssyni bókbindara
prentsmiðjunnar, og hefur það ef til vill verið að tilhlutan
Magnúsar Stepliensen. Ekki var Þórarinn þar nema eitt
ár, og sigldi þaðan vorið 1798 til Kaupmannahafnar, og
hefur þar eflaust numið bókband til fulls, og befur M. St.
líklega styrkt hann til þess. Virðist Þórarinn hafa verið
þar 3—4 ár og komið út aptur um 1802, og fer þá til M.
St. að Leirá. Séra Sigurður Br. Sivertsen á Utskálum segii'
í prestjijónustubók sinni, þar sem liann getur láts Þórarins
bókbindara, að hann hafi verið 16 ár vinnumaður hjá Magn-
úsi Stepbensen konferenzráði, og er það eflaust eptir frá-
sögn Þórurins sjálfs, er talið hefur sig hjá M. St. öllþessi
ár, er hljóta að vera árin 1797—1813. En Þórarinn verður
samt ekki heimilismaður hans á Leirá fyr en 1802. Þetta
virðist benda á, að Þórarinn hafi verið á vegum M. St. frá
1797, að bann fór að heiman og til 1802. Hefur M. St.
liklega þá kostað hann til bókbandsnáms o. (1. þessi ánn,
eins og fyr er getið, en tekið hann heim til sín 1802, er
liann kom utanlands frá, og 1803 hefur hann flutzt ineð
lionum frá Leirá að Innrahólmi, og verið þar til 1813, a<>'
M. St. fluttist til Viðeyjar1). Þá hefur Þórarinn, iíklega að
tilstuðlan M. St., farið til Þerneyjar og kvongazt Jiar sköninxu
síðar ekkju Ingjalds bónda Þorkelssonar (•]• 14. maí 1811)»
föður séra Jóns í Ilúsavík. Hún hét Katrín og var laun-
dóttir Magnúsar Móberg prentara liins sœnska. Attu þaU
Þórarinn eina dóttur, Guðrúnu að nafni, fœdda í Þerney
3. ágúst 1815. Meðan Þórarinn bjó ]>ar hefur hann tekið
Þórdísi móður sína til sín, J>vi að hún flytzt ]>aðan með
honum að Brautarholti 1817, og andast J>ar á nýársdag
1) Svo liefur dr. Jón Þorkelsson Jijóðskalavörður sagt
mér eptir nafna sínum Jóni rektor Þorkelssyni, eflaust eptu
frásögn Þórarins sjálfs, að hann haíi opt verið sendurmeð
bréf frá húsbónda sínum á Innrahólmi (M. St.) til Jörundar
liundadagakongs sumarið 1809, og hafi þá verið beðinn að
veita J»ví nákvœma eptirtekt, hvort bréfin vœru „náðuglega
lesin“ af Jörundi.