Blanda - 01.01.1923, Page 300
292
í Borgarfirði; það er í Geitabergslandi, skammt frá
Draghálsi, og beitti Sveinn opt þangað og haíði opt
góða haga, þegar hvergi voru snöp annarsstaðar, en
nú brugðust þau þar. JÞá frétti hann, að hagar væru i
Hafnarskógi. Brá hann þá við og lagði á stað með
fó sitt, og rak dag og nótt og aptur fram á dag, því
vegurinn er svo langur, kom ekki á nokkurn bæ og
ekki að Leirá, sem þó var að kalla rétt í veginum,
kom að Höfn og fékk þar Jeyfi fyrir högum. JÞar var
hann liðugar 6 vikur, og fór þrisvar úr fötum, en iá
optast í skinnklæðum í snjóhúsi því hann byggði sór
þar i svo kölluðu Böðvarsbæli í skógnum. Að hálfum
mánuði liðnum, eptir að hann kom þar, sendi ekkjan
Guðríður Bjarnardóttir á Geldingaá lionum 12 sauði
gamla með bón, að hann annaðkvort vildi taka þá
af sér að ganga með fóuu, eða taka af þeim höfuðin,
þvi hún gæti ekki horft á, að þeir dyttu niður af
hungri; tók liann þá og skilaði um vorið í góðum
holdum, en fyrir hirðinguna gaf hún lionum einn sauð-
inn. Nefnd Guðríður var systir sóra Snorra á Húsa-
felli, skáldsins1). Hélt, Sveinn þessari iðn á veturna i
10 ár, og dó engin kind um þann tíma í hor afþeim,
hann hafði undir hendi. Þá liætti Sveinu, og var amt-
maður því að öllu samþykkur. Orsök þar til var su,
að amtmaðurinn vildi hafa sömu tölu á fé sfnu, en
kindur Sveins fjölguðu svo, að ófært var að hafa svo
margt í einu lagi og undir einum hirði á vetrardag.
Setti hann þá á leigu fóðurær sínar, en kom sauðum
og lömbum í hagagöngu, og eptir því sem bezt hag-
aði. Lét amtmaðurinn hann þá læra sjó og sendi hann
vini sínum Þorgeir Markússyni, áður presti að Útskál-
1) Hún liafði átt Sigurð Hannesson á Geldingaá, ogvar
dóttir þeirrn Guðlaug inóðir Finns Narfasonar í Miðvogi
og Olafs í Asi bróður lians.