Blanda - 01.01.1923, Page 317
309
að Leirá og bað Sigríðar dóttur amtiuannsins, en fékk
afsvar1). Hann var þar urn uóttina, en um morguninn,
þá hann klæddi sig og tók haridlaugar, kvað hann vlsu
þessa:
JÞegjandi hvað þeinkir mann
það er ekki öllum Ijóst,
um ýmsa hluti hugsar hann,
hvað sem honum kemur i brjóst.
Bjó hann svona ógiptur, og bað sér ei konu það um
sé getið, en hafði þó óorð af kvennfólki; þó kenndi
honum engin barn. Eiuu sinni þegar hann var að þinga
tjaldaði hann nálægt Berserkjahrauni. Hann haíði 3
þénara með sér, en þegar þeir voru búnir að matast,
kom þar inn skrautbúin jómfrú, er Steinunn hét írá
Hrauni, ekki veit eg, hvers dóttir hún var2), en rik
og stórfelld var hún. Hún gerði boð fyrir sýslumann,
og óskaði að fá hann til viðtals, en óðara tillét hann
það, skipaði henni að koma inn í tjald sitt, en þénur-
ura að víkja út. Vorn þau þar lengi dags, en að skiln-
aði gekk hann á veg með henni, og skildust, til að
1) Annarstaðar er sagt svo frá jiessu, að sendimaður
frá sýslumanni liafi nærri verið kominn suður að Leirá með
skriflegt bónorð, þá er annar sendimaður náði lionum og
sneri lionum aptur, með }ivi að Steinunn á Hrauni liafði
þá kennt sýslumanni barnið, en það var árið 1758.
2) Hún var dóttir Guðmundar Guðmundssonar á Hrauni
og Ulfrúnar Magnúsdóttur, systir Sigurðar spitalahaldara
á Hallbjarnareyri, föðurföður séra Ólafs á Höskuldsstöðum
(t 1867). Steinunn varð tvígipt, þrátl fyrir hneykslið. Sol-
veig systir liennar átti launbarn, er hún kenndi Birni lög-
manni Markússyni kvæntum, og lá nærri, að hann missti
lögmannsembættið. Þetta barn var Davíð liigréttumaður á
Fitjum i Skorradal. Þessar Hraunssystur höfðu verið sér-
staklega gervilegur sýnum og skrautgjarnar, en nokkuð fjöl-
lyndar.