Blanda - 01.01.1923, Side 329
321
Guðrúnu Vigfúsdóttur Scheving. En um sama bil eða
um haustið varð hann lögmaður. Það var 1788. Um
veturinn var hann á Innrahólmi hjá föður sínum, en
vorið eptir reisti hann bú á hálfri Leirá, þvi stipt-
amtmaðurinn gaf honum jörðina, en ekki fékk hann
hana nema hálfa til ábúðar það ár, þvi faðirinn færði
saman búið, sem hann hafði þar, og bjó Brynjólfur
ráðsmaður hans á öðrum partinum raeð það. Róð M.
Steph. sér hjú, tvo vinnumenn og smala, en af kven-
fólki ráðskonu að norðan, hét Ragnheiður, var roskin,
hafði lengi verið hjá föður frúarinnar, og Sigriður;
hún var Sveinsdóttir, af fátæku fólki komin, en sýslu-
maður Scheving hafði fóstrað hana. Hún var þjónustu-
stúlkan, og giptist seinna séra Arnóri Jónssyni próf-
usti f Vatnsfirði, áður í Hestþingum, áttu einn son, er
Hannes hét; hann varð prestur og drukknaði1). Ekki
er mér ljóst, hvað mikinn fénað Stephensen setti saman
me3 ; þó mun það hafa verið nóg á hálflenduna. Hann
fluttist þangað um vorið 1789, og hafði lítilfjörieg
húsakynni, því þó lögmaður B|jörnJ Markússon flyttist
þaðan um vorið frá honum að Innrahólmi, hafði hann
ekki haft nema tveggja stafgólfa hús fram i bænum
°g það ónlaust2). Hús af sömu stærð var í baðstof-
unni, það hafði Brynjólfur og mátti hann þó nauðug-
lega ganga úr því og i hinn part baðstofunnar, vegna
þrengsla. Margt bar þeim á niilli, sem ekki heyrir
þessari sögu til. Brynjólfur var stórgerður, hafði mik-
ið að segja, en Stephensen lét undan i öllu mögulegu.
U þ. e. scra Hannes Arnórsson á Stað i Grunnavík,
drukknuði 18. des. 1851. Var skúldmæltur. Bróðir Sigríðar
móður hans var Skúli Sveinsson hreppstjóri á Þverá i
Vesturliópi faðir söra Sveins Skúlasonar, en móðurbróðir
Sigríðar og Skúla var Teitur Sveinsson, móðurfaðir Teits
dýralœknis Finnbogasonar og bræðra hans.
2) Svo hdr. = ofnlaust.
Blanda II.
21