Blanda - 01.01.1923, Page 341
333
giptíst hann dóttur borgarakapteins Sigurðar Þorsteins-
sonar, þá almenDt kallaður yfirmeistari gullsmiðameistar-
anna, og öldungur fyrir lögum þeirra i Kaupmanna-
höfn, föðurbróðir sýslumannsins, skáldsins Sigurðar
Póturssonar. — En eptir séra JÞórð, hvers áður er
getið, fékk séra Geatur Þorláksson1) Kjalarnessbrauð-
ið, og hann átti margar systur giptar þar á nesiuu.
Eina af þeim2) átti Loptur í Móum lögréttumaður,
þeirra son séra Þorlákur og var hann seinna i Móum
faðir séra Bjarnar á Höskuldsstöðum í Húnav.s. Önn-
ur hót Guðlaug3); hún giptist lögréttumanninum Þór-
arni Kolbeinssyni í Sjávarhólum, bjuggu þau lengi
saman, og áttu ekkert barn, en jarðir keyptu þau og
eignuðust mikla fjármuni, en að honum önduðum gipt-
ist hún hnakkasmiðnum Tómasi Bjarnarsyni Beck4);
var hann þá ekkill, og hafði áður átt fyrir kouu Guð-
rúnu Davíðsdóttur hafnarleiðsögumanns i Hlíðarhúsum;
átti 3 börn með henni, og er kaupmannskona madama
Duus eitt af þeira. 2. Björn hnakkasmiður, seinna i
Sjávarhólum, dó snögglega5), fókk til konu Margróti,
dóttur Lopts á Hálsi i Kjós, og 3. Steinunn, hana átti
Jakob Björnsson Stephensen6) frá Esjubergi.
Nú vikur sögunni til Magnúsar Stephensen. Hann
undirgekkst að sjá fyrir konu þess sálaða JMagnúsar
hreppstj. á Neðraskarði] og gipta hana ungum manni,
1) Leiðr. fjrir: Árnason i lidr. Þessi séra Gestur (f 1822)
var sonarson séru Gests Árnasonar.
2) Hún hét Ástríður. Loptur var Þorkelsson.
3) Hún var ekki sysfir séra Gests Þorlákssonar, en þau
voru brœðrabiirn. Faðir hennar Árni Gestsson i Sjávar-
hólum.
4) Hann dó 1840.
5) Hann dó 1850.
6) I hdr. stendur; að Steinunn hafi átt Björn Stephen-
sen, sem vitanlega er meinloka, og þvi leiðrétt.