Blanda - 01.01.1923, Síða 354
346
hafa það á bæ sínum, því hann hræddist, að Skagfjörð,
þá innan 40 ára, mundi verða glensmikill við griðkur
sínar; var þekktur að því á Hólum, hvar hann lærði
prentverk af Pétri Jónssyni. ]?ar eignaðist hann barn,
16 ára, en veik þaðan, því prentverkið stanzaði vegna
harðindanna, vestur í Hrappsey1), því þar vantaði
prentara og setjara, að uudanteknum Magnúsi Móberg,
sem hingað kom með preutverkinu ásamt Eiríki HoíF2),
sera þaðan var vikinn. Eylgdi Skagfjörð þangað Björn
Gottskálksson, sem ogsvo hafði verið setjari við prent-
verkið á Hólum. Þótti öllum þar mikill mannamunur
að siðferði, þó báðir væru úr sama byggðarlagi og
velgáíaðir. Var Björn sérlega stilltur, og gerði ei gys
að nokkrum manni, en sýndi velviid hverjum sem við
kynntist, og var því elskaður af öllum. Hann var hag-
orður, en enginn sórlega góður skrifari. Héldu þeir áfram
ferð sinni, sem áður er sagt i þessum erindagerðum.
Tók Bogi vel við þeim, og var það bráðum auðsýnt,
að Skagfjörð var framgjarn og mikilhæíur, er hann
tók til menntar sinnar. Var þó í orði, að hann væri
fremur tæpur en vel að sér í henni. Þó tókst honum
að koma Móberg undir ok sitt og gerast hans yfir-
maður. Var lxann þó búinn að vera yfir 20 ár við
prentverk, fyrst eitthvað lítið i Berlín, og svo hjá
Thiele í Kaupmannahöfn, veik þaðan ásamt Eiríki Holf
með bezta vitnisburð til þess nýsetta prentverks í
Hrappsey, undir yfirráðum áðurnefnds prentara, og
þótti þó engin gæði að sjá við hrekkjum hans, en
hann var þar hvorki vel né lengi. Tók Móberg þá
bóndason Guðmund Ólafsson frá Arney. Ólafur sá var
1) I>aó var 1782, sem Guðmundur fór frá Hóluin vestur
í Hrappsey, en Björn Gottskálksson kom þangað árið
eptir.
2) Hann var son Guðmundar prests Eiríkssonar á Refslað
eystra, (ý 1781), og þótti viðsjármaður og rysjóttur.