Blanda - 01.01.1923, Page 399
391
Yísa Torfa stiidents Eggerz (d. 1836),
liklega kveðin, þegar hann var að læra undir skóla
í Odda1).
Vestra dalir, fjara, fjöll,
fljót, grös, klettar, steinar,
gleði veita hugar höll,
hér sem austrið meinar.
Smælki.
Jón hét böðull Þórarins sýslumanns á Grund (d.
1767). Þurfti sýslumaður eitt sinn að láta hýða stúlku
fyrir harneignir, en Jón böðull hafði verið einn af þeim,
er barn höíðu átt með stúlkunni. Hugði sýslumaður
því, að Jóni mundi geðfelt að komast hjá því að þurfa
að leggja hýðinguna á liana, og bauð honum að vera
lau3um við það, ef hann vildi. Jón neitti þvi, og
kvaðst verða að gæta embættis síns svo sem hver
annar. Beiddi stúlkan þá Jón sinn góðan að vægja
sér, er hann tók til að hýða. Þá svaraði Jón og herti
sig við hýðinguna: „Biddu sýslumanninn og syndirn-
ar þínar að vægja þér“.
Frá förukerlingu. Hún fór með tirjubagga sinn yfir
Jökulsá á kláfi. Það er milli kletta, og er kallað tví-
tugt bjarg frá kláfnum ofan að vatninu, sem fellur með
flugstreymi milli klettanna. Þegar kerling var komin
yfir miðja ána í kláfuum, sundlaði hana, og varð hún
ringluð, stóð upp í kláfnum, lagði pokann á bak sér,
og heyrðu menn hana segja: „Ekki skal eg vera svo
vitlaus að drepa mig hérna!“ Með það stakk hún sér
á höfuðið út úr kláfuum, og er það sögn, að einginn
hafi þar fyrr eða síðar týnzt.
1) Eptir Lbs. 936 4t,o.