Blanda - 01.01.1923, Side 412
402
anum, er Nymann hét, og komst hann sem nauðuleg-
ast fyrir Hornið, með því að þiða jafnan seglin með
brennheitu vatni. í>ó brotnaði bugspjót af duggu hans,
og skemdist að meiru. Segja sumir, að gat brotnaði
á hana, en þó komst hann lífs af, og lót bæta skip sitt.
Það er nú frá Torfa að segja, að hann situr í búi
sinu, og varð nú eitt sinn, að áttæringar af Grjögri
lágu úti drottinsdag. Var Torfi einn af þeim á skipi
sinu Skrauta. Öfluðu flestir vel. Magnús Guðmunds-
son hét hreppstjóri í Árnesshrepp, og liggja Gjögrar1)
í hoDum. Hann bjó á Finnbogastöðum í Trékyllisvík.
Heimti hann nú helgidagsbrot til handa fátækum mönn-
um, og ritaði um það yfirvöldum; létu það sumir, en
sumir ekki. Torfi lézt mundi fyrir sig einan láta, en
eigi vildi hann koma neinum á tolltekju þá af hákalla-
skipum, er í legum væri, er það væri eigi heimt af
þilskipum, er eins lægju opt að veiðum drottinsdaga,
og ritaði um það amtmanni, og færði mörg rök til
síns máls, og kom svo, að amtmaður úrskurðaði há-
kallaskipin frjáls við gjald þetta sem þilskipin. Er
Torfi vitur maður og staðlyndur, og dreingur hinn
bezti. Börn hans og Önnu eru dætur tvær Sofia2 3 4 * * *) og
Guðbjörg8). Hafði hann og afarvel með höndum svara-
mensku fyrir stjúpdætur sínar JÞórdísi og önnu1).
Guðmundur Torfason, faðir Þórdísar konu Einars á
Kollafjarðarnesi, sem getur um hór að framan, bjó að
1) Gjögrarar, hdr.
2) gipt 21. Júlí 1866 Einari smið Einarssyni í Bólsstað,
og lifir hún enn.
3) gipt 14. Maí 1868 síra Guðmundi Gísla Sigurðssyni í
Gufudal, ogsiðar Eymundi Guðhrandssyni, oglifaþau ennbœði.
4) kona Árna Guðmundssonar á Knllaðarnesi. — Alt
lúngað sýnist vera eptir Gisla Konráðsson, og með þekkj-
anlegum stýl hans. Framan við það, sem á eptir fer, stend-
ur „NB“, og mun það vera viðbót síra Friðriks.