Blanda - 01.01.1923, Síða 434
bókum, 68m enn er eklti lokið að gefa út, þegar þeir ganga
inn sem æfiíólagar, að undanteknum Alþingisbókum.
Fólagamenn fá í ár (1921) þeasar bækur lijá félaginu:
1. Alþingisbækur íslamls IV, 3. (1618—1619) 10,00.
2. Landsyfirréttar- og hœstaréttardómar 1802—1873. II., 3.
3,00.
3. Blanda, fróðleikur gamall og nýr. II., 1. 3,00.
Skilvísir kaupendur fá því 1 ár bækur fyrir 16,00, gegn
að eins 8 kr. áragjaldi.
Nýir fólagamenn með árstillagi, sem ganga í félagið fyrir
næsta aðalfund (1922), og borga um leið, geta feingið allar
þær bækur, sem félagið hefir gefið út fram að árinu 1921:
Moröbréfabæklinga, Biskiqmsögur I.—II., Aldarfarsbókina,
Tyrkjarániö, GuÖ/'rœðingatalið, Prestaskólamenn, Lögfrœðingatal,
Æfisögu Gisla Konráðssonar, Alþingisbœkur 1 -III og IV, 1—2,
Æfisögu Jóns prófasts Steingrímssonar, Lœknatal, Hyllingarskjöl,
Búalög 1.—2. h., Skólameistarasögur 1.—5. h., Æfisögu Þórðar
Sveinbjarnarsonar, Landsyfirréttardómal, ogll, 1—2, Blöndu I.,
1—3 fyrir hálfvirði, og auk þess ókeypis Skrá um skjöl og
bœkur í Landsskjalasafninu. I.—III. (fullar 45 arkir).
Fólagið hafði i áformi að gefa 1915 út 1. hepti af Þjóð-
sögumtm gömlu Jótis Árnasonar, og var ráðið að láta prenta
(manul-preuta) þær á IÞjóðverjalandi, — það reyndist bezt
og ódýrast —, en sökum ófriðarius og kostnaðarauka og
alls óhagræðis, sem af houum leiöir, hefir fólagið enn orðið
að fiesta þessu verki.
Forseti fólagsins er Dr. Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður,
og eiga nýir félagar að gefa sig Iram við liann.
Gjaldkeri er Klemens Jónsson landritari, og eiga félagsmenn
að greiða tillög bín beint til hans.
Afgreiðslu bóka félagsins hefir Helgi Árnason safnahúss-
vörður á hendi.