Blanda - 01.01.1923, Qupperneq 438
Árstillag félagsmaana er 8 kr. Æfitillag í eitt skipti fyrir
öll er 100 kr. Æfifélagar fá allar bækur félagsins, sem það
gefur út upp frá þeim degi, er þeir gerast æfifélagar. Fyrst
um sinn geta æfifélagar og feingið ókeypis, um leið og þeir
greiða æfitillag sitt, hepti þau, som áður eru út komin af
bókum, sem enu er okki lokið að gefa út, þegar þeir ganga
inn sem æfifélagar, að undanteknum Alþingisbókum.
Félagsmenn fá í ár (1922) þessar bækur hjá fólaginu:
1. Alþingisbækur íslands V,1 (1G20) 2,40.
2. Landsyfirréttar- og hœstaréttardómar 1802—1873. II., 4.
1,80.
3. Blanda, fróðleikur gamall og nýr. II., 2. 4,80.
4. Skólameistarasögur 6. hepti 1,20.
Skilvísir kaupondur fá því í ár bækur fyrir 10,20, gegn
að eius 8 kr. ársgjaldi.
Nýir fólagsmenn með árstillagi, sem ganga í félagið fyrir
næsta aðalfund (1922), og borga um leið, geta feingið allar
þessar bækur, sem fólagið hefir gefið út fram að árinu 1922:
Moröbréfabœklinga, Biskupasögur í.—II., Aldarfarsbókina,
TyrkjarániÖ, Guöfrceöingataliö, Prestaskólamenn, Lógfrceöingatal,
Æfisógu Gísla Konráössonar, Æfisógu Jóns prófasts Steingríms-
sonar, Lœknatal, Hyllingarskjöl, Búalög 1.—2. h., Skólameist-
arasögur 1.—5. h., Æfisögu ÞórÖar Sveinbjarnarsonar, Lands-
yfirréttardóma I, og II, 1—2, Blöndu I.—11,1 fyrir hálfvirði,
og auk þess ókeypis Skrá um skjöl og bœkur í Landsskjala•
safninu. I.—III. (fullar 45 arkir).
Fólagið hefur f áformi að gefa næsta ár út 1. hepti af
Þjóösögumm gömlu Jóns Árnasonar, undir þá grein, sem
hermir í boðsbréfi fólagsins, er seut verður út samhliða fó-
lagsbókunum i ár.
Forseti fólagsins er Dr. Jón Þorkelsson þjóöskjalavöröur,
og eiga nýir félagar að gefa sig fram við hann.
Gjaldkeri er Klemens Jónsson ráöherra.
Afgreiðslu bóka félagsins hefir Helgi Árnason safnahúss-
vöröur á hendi, og eiga félagsmenn að greiða tillög sín beint
til hans.