Eimreiðin - 01.10.1931, Side 100
412
KREUTZER-SÓNATAN
EIMREIÐIN
ekki rélt til að gefa sig honum á vald eða hafna honum eftir
eigin geðþótta. Hún fær ekki að velja, heldur er hún valin-
Vður finst nú ef til vill sem hvert annað fyrirkomulag en
þetta væri rangt? Látum svo vera, en sé svo, á karlmaðurinn
ekki að njóta neins góðs af réttindum sínum. Því eins oS
ástandið er nú, er konan svift þeim rétti, sem maðurinn hefur,
en hún hefnir sín með því, að hafa áhrif á líkamsfýsn hans,
— og gerir hann svo háðan sér með því, að valfrelsi hans
verður að engu, en það verður hún, sem í raun og veru ræður-
Og þegar konan hefur fengið þetta vald, misbeitir hún þvl
og drotnar miskunnarlaust yfir fólkinu«.
»En hvar sér maður þetta vald?« spurði ég.
»Hvar? Alstaðar og í hverju sem er. Þér skuluð bara
svipast um í verzlunarhúsum stórborganna. Öll þau kynstur
mannlegs starfs, sem þar er boðið til sölu, verður ekki meti^
til fulls, en það er margra miljóna virði. Þér skuluð safflt
ekki finna neitt í hverjum níu af tíu þessara verzlana, sem
karlmönnum sé ætlað. Alt veraldarinnar skraut er eingöngu
til vegna konunnar. Það er konan, sem heldur við eftirspurn-
inni. Þér skuluð kynna yður verksmiðjurnar og framleiðsluna
þar. Þér munuð sjá, að í fjöldamörgum þeirra er ekki annað
gert en að búa til allskonar gagnslaust skran handa kven-
fólkinu. Miljónir þjáðra manna slíta sér út á þessari galeiðu-
þrælavinnu í verksmiðjunum, sem eingöngu fer til að fullnægi3
dutlungum kvenfólksins. Drottinvald konunnar heldur níu tí'
undu hlutum mannkynsins föstum í þrælaviðjum, undir oki
látlauss strits.
Og þetta stafar alt af því, að við höfum sýnt konunni lítils'
virðingu og ekki látið hana fá sömu réttindi og við höfum-
Hefnd hennar hefur reynst svo áhrifarík, að karlmennirnu'
geta ekki umgengist konurnar rólega, heldur liggja þeir fjötr-
aðir fyrir ofurvaldi þeirra og verða alveg ringlaðir. Ég hef
sjálfur áður fyr orðið ringlaður af að sjá samkvæmisklseöda
konu, og nú orðið gerir sú sjón mig blátt áfram skelfdan-
Mér finst einhver hætta stafa frá henni, eitthvað ólögm®^
eiga sér stað, svo mér er næst skapi að kalla á lögregluua-
til þess að leita verndar gegn hættunni, krefjast þess, að henm
sé sem fyrst rutt úr vegi.