Eimreiðin - 01.10.1931, Side 116
428
KREUTZER-SÓNATAN
eimreiði^
Og hvað er þetta svo annað en þrælkun? Er það ekki
einmitt þrælkun að nota sér það, að aðrir neyðist til að vinna
fyrir mann? Þessari þrælkun verður aldrei af létt fyr en
mennirnir eru orðnir svo þroskaðir, að þeir telja sig of góða
til að láta aðra þræla fyrir sig út úr neyð. Nú er þe^a
þannig, að þrælkunin er látin viðgangast, þó að þrældómn-
um hafi að forminu til verið breytt og þrælaverzlun sé ekki
lengur rekin með kaup- og sölusamningum. Þrælkunin heldur
áfram eftir sem áður. Menn halda áfram að hagnast á þeSS'
ari þrælkun og telja það bæði rétt og sjálfsagt. Þeir seni
sterkastir eru og slyngastir að hagnýta sér þrælkunina láta
þá heldur ekki á sér standa að bola öðrum úr vegi. Kúgnn
kvenna er fólgin í því, að menn fást ekki til að líta á kon-
una öðruvísi en sem tæki til nautnar. Hvaða gagn er svo að
kvenfrelsinu? Það er verið að leysa hana undan kúguninm-
veita henni-allskonar réttindi eins og karlmönnunum, en hvaö
stoðar þetta alt saman? Við lítum á hana sömu augum ef*ir
sem áður og höldum áfram að veita henni það uppeldi, sem
bezt kemur heim við drottnandi skoðanir á hlutverki hennar-
Svo verður hún áfram, þrátt fyrir alt hið marglofaða kven-
frelsi, sama svívirta og siðferðilega spilta ambáttin sem hun
hefur alt af verið og maðurinn sami siðferðilega spilti drottnar
inn og áður.
Menn halda, að konan öðlist frelsið með því að fá aðgan3
að háskólum og embættum. En við höldum áfram effir seJ^
áður að líta á hana sem tæki til nautnar. Og þar sem
við
gerum það nú eins og áður, heldur hún áfram að meta sjálfa
sig á sama mælikvarðann. Hún heldur áfram að vera sama
lítilmóflega veran og áður, þráft fyrir upplýsinguna. Annað
hvort kemur hún í veg fyrir það að verða barnshafandi oö
gerir sig með því að réttri og sléttri skækju, sekkur dýpra
sjálf dýrin geta sokkið, verður hreint og beint leikfang, e
hún verður — eins og oftar á sér stað — sama veikger '
móðursjúka veran og áður, sem ekki á þess nokkurn ko
að öðlast andlegan þröska.
Framhaldsskólar fyrir konur og almennir mentaskólar 3
ekki breytt neinu í þessu efni. Það eina, sem gæh
ástandið, er nýtt og heilbrigðara mat á konunni. Þetta en