Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1933, Side 74

Eimreiðin - 01.07.1933, Side 74
298 KOLBEINSEY eimreiðin eftir skipinu, en bæði vegna óveðurs og brims varð hann að snúa aftur, ætlaði hann varla að ná landi og var nærri drukn- aður, en skipið rak æ lengra undan með öllu sem þeir höfðu til lífsbjargar, mat og drykk og fatnaði þeirra. I þessum hörm- ungum reikuðu þeir ráðþrota upp frá flæðarmálinu; varð þeim það eitt til úrræða, að þeir féllu á kné á klettunum og báðu guð grátandi hjálpar og miskunar. Síðan ráfuðu þeir upp á eyna og töluðu ekki orð frá munni. Lægði þá skyndilega sjó og vind, fyrst kom logn og þar næst hægur vindur á út- norðan, svo að skipið rak aftur að eynni. Ottuðust þeir þá, þó að djúpt væri, að skipið kynni að steyta á skeri, þar sem þeir næðu ekki til, en það varð þó ekki. Þeir bræður höfðu haft haldfæri með sér úr skipinu og röktu það niður í stóran hring, bundu stein í endann á því og köstuðu honum út í skipið. Vildi þeim það til lífs og bjargar, að steinninn festist undir stafnlokinu á skipinu, svo að þeir gátu dregið það að sér, og má nærri geta hversu óumræðilegur fögnuður það muni hafa verið fyrir þá. Bjuggu þeir nú betur um skipið eftir en áður og tóku síðan fugl (langvíur) og egg í bezta næði og blíðviðri. Þeir vaðbáru eyna, og mældist hún 400 faðma á lengd, en á breidd 60 faðma og nálægt 60 föðrnum á hæð, þar sem hún var allra hæst. Fernskonar grjót var í eynni og hún öll með holum og gjám, full af grjóti en engin grastó í milli. Alls dvöldu þeir 7 dægur við eyna, höfðu þeir þá tekið 8 stór-hundruð af fugli, ógrynni af eggjum og nokkuð af fiski. Frá Kolbeinsey var land alt horfið sjónum, nema einar þrjár þúfur, en það voru hæstu fjöllin á landi. Þegar þeir fóru frá eynni, fengu þeir hagstæðan byr, farnaðist vel og tóku land á Siglunesi, á Maríumessu. Foreldrar þeirra þóttust hafa heimt þá úr helju og urðu allshugar fegnir komu þeirra. Þessi för þeirra Hvanndala- bræðra hefur síðan verið að minnum höfð. Spunnust um hana margskonar sagnir, er bárust manna milli frá einu landshorn- inu til annars og tóku á sig ýmiskonar gervi, er síðar bland- aðist hjátrú og hindurvitnum. Meðal annars áttu þeir Hvann- dalabræður að hafa Iátið Iífið á Kolbeinsey. Bendir til þessa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.