Eimreiðin - 01.07.1933, Blaðsíða 128
352
RITSJÁ
EIMREIÐIN
er oft erfitt að svara. Ef segja skal um þetta að því er snertir þessa
nýju bók D. St., verður svarið neikvætt að því er form kvæðanna
snertir, en jákvætt að því er efnið snertir. D. St. hefur oft áður ort fult
eins góð kvæði að forminu til. Honum hefur frá því fyrsta verið létt um
form, og sú hliðin á skáldskap hans hefur tekið tiltölulega litlum breyt-
ingum. En þegar til efnisins kemur dylst ekki, að um framför er að ræða.
Yrkisefnin eru yfirleitt veigameiri en áður. Á bak við orðin er ákveðn-
ari lífsskoðun, meiri alvara en áður.
„Þeim hverfur æskunnar yndi,
hinn ólgandi hlátur í gleðinnar borg,
sem horfa af hugans tindi
á heimsins kvalir og sorg"
segir skáldið í kvæðinu 77/ vinar míns. Það er ljóst af þessari bók,
þrátt fyrir það að kvæðin eru misjöfn að gæðum, að á bak við þau er
þroskaður höfundur með glögga sýn yfir mannlífið, maður með boðskap,
þrátt fyrir hverflyndið, maður, sem tekinn er að sjá í gegnum vef blekk-
inganna og er óðum að koma auga á þau verðmæti, sem gildi hafa. Boð-
skapur D. St. er alþjóðlegur, en jafnframt á hann sérstakt erindi við
sína eigin þjóð. Það erindi er hann altaf að túlka öðru hvoru í kvæð-
um sínum, með ástinni, sem þar kemur fram á landinu, fólkinu, tungunm,
hinni þjóðlegu aldagömlu menningu vorri, sögu Iandsins, bókmentunum
og þó ef til vill fyrst og fremst með ást sinni á verkum hinna mörgu>
sem erfiðuðu í sveita síns andlitis á íslenzkri grund án þess að Iáta eftir
sig nokkra sögu. Hann hefur óbilandi trú á íslenzkri mold:
„Tak hest þinn og plóg.
Helga þér jörð . . . hér er landrými nóg.
Moldin geymir hinn mikla auð.
Moldin gefur þér daglegt brauð.
Uppskeran bætir þinn ytri hag.
Umhyggjan mildar þitt hjartalag.
Átakið skapar afl og þrótt.
í erfiði dagsins skal gæfan sótt“ . . .
Þannig kemst hann að orði í kvæðinu Mold. Hér verður hvergi var
þeirrar heimspeki eymdarinnar, sem svo mjög er nú prédikuð á str*lulT1
og gatnamótum, og það er sannarlega hressandi að heyra slík eggjuuar
orð innan um alt volæðið út af kreppu og kaupkúgun, atvinnuleysi
afurða-verðhruni, sem fer með alla bjartsýni norður og niður. ^
Eg ætla ekki að Iúka þessum línum með áskorun til Iesenda um
kaupa þessi ljóð, eins og oft er siður þeirra, sem um baekur g
Þess þarf ekki. Sv.