Eimreiðin - 01.04.1935, Síða 68
188
UiM AMERÍKUMENN.
eimrbiði!í
því, þótt ég væri aðeins nýkominn til landsins — og síðar heí
ég sannfærst um það — að i þessum hópi gæti að líta sum þaU
einkenni, sem þetta land — Bandaríkin — byggi j'fir. Þarna
voru menn á öllum aldri frá hálfþrítugu og til áttræðisaldurs-
En yfir þeim hvíldi einhver blær æsku og lífsfjörs, sem ekk'
var bundinn við áratölu aldursins. Þeir voru því nær allir t. d-
miklir hlaupagarpar. Þeir léku sér í knattleik á hverjum eiH'
asta degi í steikjandi sólarhitanum og sóttu leikinn síður eU
svo ineð hangandi hendi, heldur af kappi og ungæðislegun1
áhuga. Og þegar þeir komu undan köldu stevpibaðinu að leikn-
um loknum, fanst þeim þeir fyrst vera verulega undir þa®
búnir að fara í kappræðu-glímur kvöldsins.
Sem sagt, mér fanst ég hafa veður af, að ég stæði hér and'
spænis mönnum með aðrar hugsanir og annað skapferli heldu1
en ég hafði búist við. Og allar kímnisögur Evrópumanna un1
Ameríkumenn standa sennilega í einhverju sambandi við þa^
— þegar frá er dreginn óvildarhugur keppinautsins og óvildar'
hugur sá, sem jafnan fylgir vanþekkingunni — að menn finna’
að Ameríkumaðurinn er í raun og sannleika í verulegmn a^'
riðum frábrugðinn þeim. Það stafar ekki af því, að AmeríkU'
maðurinn sé minna prúðmenni — minni „gentlemaður“ —- el1
menn annara þjóða. Það stafar heldur ekki af því, að han11
sé iniður mentaður en menn annara þjóða. Það stafar blá^
áfram af því, að i þessu tiltölulega nýja landi hefur vaxið UpP
annað viðhorf á lifinu, annar skilningur á því, heldur efl
annarsstaðar hefur getað þrifist. Hvort sem mönnum finst þai'i
meðmæli með nútimanum eða ekki, þá verður það bezt orða^
á þann hátt að segja, að Ameríkumaðurinn sé fyrsti nútíiua'
maðurinn. Með því á ég við, að það er í Ameriku einni, se111
unt er að tala um, að menn hafi samlagað sig eða séu að san1'
laga sig því umhverfi, því bueytta viðhorfi, sem breytingin 11
hinum vtri háttum síðari tíma menningar óhjákvæmiletP1
hlýtur að hafa í för með sér, svo sem nú skal athugað Ih1^
eitt nánar.
Það er þá fyrst öllum vitanlegt, að Ameríka er ungt la°u)
og lönd Norður-Ameríku eru stór lönd. Bandaríkin eru ekk1
sambærileg við neitt land i Evrópu, heldur við álfuna alla. Or
Kanada er enn meira að víðáttu. Það þarf ekki að rifja upP